Borgarskákmótið 2025

    0
    504
    Sigurvegarar: Róbert Lagerman (GA Smíðajárn) 2. sæti, Helgi Áss Grétarsson (Hreyfill) sigurvegari, Ingvar Þór Jóhannesson, formaður TR

    Borgarskákmótið fer fram fimmtudaginn 21. ágúst, og hefst það kl. 15:30. Líkt og undanfarin ár fer mótið fram í Ráðhúsi Reykjavíkur og stendur Taflfélag Reykjavíkur að mótinu.

    Borgarskakm_2015-7

    Tefldar verða 7 umferðir með umhugsunartímanum 4 mínútur + 2 sekúndur á leik (4+2). Mótið verður reiknað til hraðskákstiga og er öllum opið. Þátttaka er ókeypis. Skákmenn eru hvattir til að skrá sig sem fyrst í skráningarforminnu til að liðka fyrir mótshaldi.

    Þetta er í 40. sinn sem mótið fer fram og er þetta iðulega eitt best sótta skákmót hvers árs. Gera má ráð fyrir að margir af sterkustu skákmönnum þjóðarinnar verði á meðal keppenda. Í fyrra sigraði Helgi Áss Grétarsson en hann vann mótið einnig árið áður!

    Verðlaun:

    1.sæti 30.000 kr.

    2.sæti 20.000 kr.

    3.sæti 10.000 kr.

    Verðlaun skiptast eftir Hort kerfi. Oddastigaútreikningur í mótinu:

    1. Bucholz -1
    2. Bucholz
    3. Innbyrðis úrslit
    4. Sonneborn-Berger
    - Auglýsing -