Úrslitakeppni Íslandsmóts Símans í netskák 2025 hefst sunnudaginn 7. september og stendur yfir til 30. nóvember. Mótið, sem er skipulagt af Rafíþróttasambandi Íslands í samstarfi við Skáksamband Íslands, Sjónvarpi Símans. Keppt er eftir útsláttarfyrirkomulagi, þar sem 16 sterkir skákmenn etja kappi um titilinn Íslandsmeistari í netskák.
Keppendalisti
Mótið skartar glæsilegum hópi keppenda, þar á meðal stórmeisturum, alþjóðlegum meisturum og fleiri sterkum skákmönnum. Hér er listi yfir keppendur, ásamt skákstigum og hvernig þeir öðluðust þátttökurétt:
GM Vignir Vatnar Stefánsson (2590) – Átta manna úrslit- GM Helgi Áss Grétarsson (2416) – Hraðskákstig
- IM Björn Þorfinnsson (2400) – Hraðskákstig
- GM Jóhann Hjartarson (2381) – Hraðskákstig
- FM Ingvar Þór Jóhannesson (2372) – Átta manna úrslit
- FM Jón Kristinn Þorgeirsson (2336) – Undanrásir
- IM Dagur Ragnarsson (2315) – Undanrásir
- FM Símon Þórhallsson (2278) – Átta manna úrslit
- GM Bragi Þorfinnsson (2267) – Átta manna úrslit
- IM Aleksandr Domalchuk-Jonasson (2259) – Átta manna úrslit
- FM Róbert Lagerman (2253) – Undanrásir
- Birkir Ísak Jóhannsson (2218) – Undanrásir
- FM Bárður Örn Birkisson (2216) – Undanrásir
- CM Björn Hólm Birkisson (2139) – Undanrásir
- WCM Jóhanna Björg Jóhannsdóttir (2054) – Undanrásir
- Dagur Andri Friðgeirsson (2023) – Undanrásir
Keppendur koma úr undanrásum, átta manna úrslitum frá fyrri mótum og byggt á hraðskákstigum, sem tryggir hörkuspennandi viðureignir.
Dregið verður um töfluröð á morgun.
Dagskrá
Mótið fer fram á sunnudögum frá 7. september til 30. nóvember 2025, samkvæmt eftirfarandi dagskrá:
- 7. september 2025: Netskák dagur 1 (16 manna úrslit, 6 skákir)
- 14. september 2025: Netskák dagur 2 (16 manna úrslit, 6 skákir)
- 21. september 2025: Netskák dagur 3 (16 manna úrslit, 6 skákir)
- 28. september 2025: Netskák dagur 4 (16 manna úrslit, 6 skákir)
- 2. nóvember 2025: Netskák dagur 5 (8 manna úrslit, 6 skákir)
- 9. nóvember 2025: Netskák dagur 6 (8 manna úrslit, 6 skákir)
- 23. nóvember 2025: Netskák dagur 7 (undanúrslit, 6 skákir)
- 30. nóvember 2025: Netskák dagur 8 (úrslit, 10 skákir)
Tímamörk verða 3+2 og nákvæmar tímasetningar útsendinga verða tilkynntar síðar. Mótið fylgir útsláttarfyrirkomulagi, þar sem keppendur detta út eftir tap þar til einn stendur uppi sem sigurvegari.
Verðlaun
- 175.000
- 75.000


Úrslit undanrásanna













