Ingvar Wu Skarphéðinsson er í banastuði á Haustmótinu en hann hefur fullt hús í B-flokki eftir þrjár umferðir. Björn Þorfinnsson er efstur í A-flokki en ein frestuð skák úr flokknum er tefld í kvöld þar sem Dagur gæti náð Birni. Kristján Örn er efstur í C-flokki og þeir Karma og Þór Jökull hafa fullt hús í opna flokknum.

Umferðin var tefld í gær, sunnudag í Friðrikssalnum í Faxafeni, húskynnum Taflfélagsins.

A-flokkur

Íslandsmeistarinn Vignir Vatnar Stefánsson þurfti á dáleiðslu að halda til að leggja Íslandsmeistara kvenna, Lenku Ptacnikovu. Lenka varðist vel í sikileyjarvörninni og fékk betra tafl með biskupaparið. Vignir reyndi að búa eitthvað til en varð lítið ágengt annað en tímaforskot. Lenka gleymdi sér í lokin og féll á tíma, óheppnistap.

Josef tefldi af krafti gegn Birni en skiptamunsfórn hans var líklega ekki alveg rétt samkvæmt „apparötum“. Björn brást hinsvegar bogalistin í flækjunum og missti unnið tafl niður í jafnteflislegt endatafl. Í endataflinu skildi hinsvegar á milli og Björn náði að kreysta fram vinning úr nánast engu.

Þorsteinn og Adam sömdu í stöðu sem var líklegast orðinn ívið betri hjá Adam.

Tvíburarnir Björn og Bárður skildu jafnir í tíðindalítilli skák

Skák Dags og Olivers var frestað og er hún tefld í kvöld.

Stefnir í spennandi A-flokk!

B-flokkur

Ingvar hafði hvítt gegn gegn Harald sem tefldi glimrandi skák lengst af í Búdapestarbragðinu. Ingvar var í smá bobba á tímabili en náði með ótrúlegri sveiflu að koma svarta kóngnum á vergang og véla af honum hrók í vægast sagt tvísýnni skák!

Sigurður Páll bauð upp á einn af flottari leikjum mótsins hingað til.

32…b3!! verðskuldar upphrópunarmerkin hér. Svartur á að vinna í öllum varíöntum en Sigurður náði ekki að fylgja eftir rétt og fann ekki vinninginn í kjölfarið.

Arnar Milutin missti niður kolunnið tafl gegn Benedikt sem varðist vasklega í erfiðu endatafli og náði skiptum hlut.

Loks lagði Jóhann Ragnarsson hinn unga Sigurbjörn Hermannsson að velli.

Stefán og Jón Trausti tefla frestaða skák sína í kvöld.

C-flokkur

Kristján Örn hefur 2,5 vinning í C-flokki og virðist í nokkru stuði. Hann lagði Hauk að velli í snaggaralegri sóknarskák. Kristján lokaði kóngsvængnum með …h5 og beið með að hróka og fór svo í stjaksetningaraðgerðir á drottningarvæng sem báru ávöxt.

Opinn flokkur

Þór Jökull og Karma hafa enn fullt hús í opnum flokki!

 

- Auglýsing -