Stúlkna- og drengjameistaramót Reykjavíkur 2026

    0
    432
    Hvenær:
    15. mars, 2026 allan daginn
    2026-03-15T00:00:00-01:00
    2026-03-16T00:00:00-01:00
    Hvar:
    Taflfélag Reykjavíkur
    Faxafen 12
    108 Reykjavík
    Ísland
    Gjald:
    1500
    Tengiliður:
    Taflfélag Reykjavíkur
    Stúlkna- og drengjameistaramót Reykjavíkur 2026 @ Taflfélag Reykjavíkur | Reykjavík | Reykjavíkurborg | Ísland

    Stúlkna- og drengjameistaramót  Reykjavíkur fer fram sunnudaginn 15. mars

    Þátttökugjöld eru kr.1500 (í alla flokka).
     

    Mótið er telft í fjórum flokkum
    Skráning í alla flokka fer fram hér:

    Mótið er opið öllum börnum og unglingum, óháð taflfélagi eða búsetu, sem eru fædd árið 2010 eða síðar.

    Aðalkeppnin fer fram í einum opnum flokki og þar verður keppt um sæmdarheitin Drengjameistari Reykjavíkur 2026 og Stúlknameistari Reykjavíkur 2026. Tefldar verða 7 umferðir eftir svissnesku kerfi með umhugsunartímanum 10 mínútur á skák, auk þess sem 5 sekúndur bætast við eftir hvern leik (10m+5s).  Mótið verður reiknað til alþjóðlegra atskákstiga.
    Aðalkeppnin hefst kl.13 og má reikna með að hún standi til kl.17 c.a. Keppendur staðfesti þátttöku á mótsstað eigi síðar en kl.12.45.

    Boðið verður upp á þrjá yngri flokka:

    Yngri flokkur 1 (f.2016-2017)
    Tefldar verða 5 umferðir eftir svissnesku kerfi með umhugsunartímanum 10 mínútur á skák, auk þess sem 5 sekúndur bætast við eftir hvern leik (10m+5s).
    Yngri flokkur hefst kl.13 og má reikna með að standi til kl.15.30 c.a. Keppendur staðfesti þátttöku á mótsstað eigi síðar en kl.12.45.

    Yngri flokkur 2 (f.2018)

    Tefldar verða 5 umferðir eftir svissnesku kerfi með umhugsunartímanum 7 mínútur á skák, auk þess sem 3 sekúndur bætast við eftir hvern leik (7m+3s).

    Yngri flokkur 2 hefst kl.10 og má reikna með að standi til kl.12 c.a. Keppendur staðfesti þátttöku á mótsstað eigi síðar en kl.9.45.

    Yngri flokkur 3 (f.2019 og síðar)
    Tefldar verða 5 umferðir eftir svissnesku kerfi með umhugsunartímanum 7 mínútur á skák, auk þess sem 3 sekúndur bætast við eftir hvern leik (7m+3s).
    Yngri flokkur 3 hefst kl.10 og má reikna með að standi til kl.12c.a. Keppendur staðfesti þátttöku á mótsstað eigi síðar en kl.9.45.

    Krakkar sem eru gjaldgengir í yngri flokkana mega velja hvort þau tefla í aðalkeppninni eða í yngri flokkunum.

    Verðlaun í opna flokknum:

    Verðlaun verða veitt fyrir þrjú efstu sætin. Til viðbótar verða veitt verðlaun fyrir efstu stúlku og efsta dreng í öllum árgöngum. Elsti árgangurinn er 2010 og yngsti árgangurinn er 2019 og yngri.

    Nafnbótina Drengjameistari Reykjavíkur 2026 hlýtur sá drengur sem verður hlutskarpastur þeirra sem hefur lögheimili í Reykjavík eða eru meðlimir í reykvísku félagi. Nafnbótina Stúlknameistari Reykjavíkur 2026 hlýtur sú stúlka sem verður hlutskörpust þeirra stúlkna sem hefur lögheimili í Reykjavík eða eru meðlimir í reykvísku félagi.

    Verðlaun í yngri flokki 1:
    Verðlaun verða veitt fyrir þrjú efstu sæti. Til viðbótar verða veitt verðlaun fyrir efstu stúlku og efsta dreng í báðum árgöngum (2016 og 2017).

    Verðlaun í yngri flokk 2:
    Verðlaun verða veitt fyrir þrjú efstu sæti. Til viðbótar verða veitt verðlaun fyrir efstu stúlku og efsta dreng.

    Verðlaun í yngri flokk 3:
    Verðlaun verða veitt fyrir þrjú efstu sæti. Til viðbótar verða veitt verðlaun fyrir efstu stúlku og efsta dreng í árganginum 2019 og 2020 og yngri.

    ​Núverandi Reykjavíkurmeistarar eru Pétur Úlfar Ernisson og Emilía Embla Baldvinsdóttir Berglindardóttir.

    - Auglýsing -