Þriðjudaginn 20. janúar heldur Skáksambandið dómara námskeið fyrir grunndómara réttindi NA (e. national arbiter) Farið verður yfir meginhluta þeirra reglna sem tengjast skákstjórahlutverkinu. Farið verður yfir skákreglur FIDE og einnig verður farið yfir hlutverk skákstjóra, pörun, klukkuna, og þær aðstæður sem koma regulega upp a mótum,
Námskeiðið er tilvalið fyrir þá sem vilja kynna sér skákstjóra hlutverkið og því sem það fylgir. Gefur það réttindi fyrir NA (e. national arbiter) Námskeiðið verður haldið í Skáksambandinu frá 19:00 – 21:00, Umsjón með námskeiðinu er Daði Ómarsson.
Til skoðunar er að jafnframt að bjóða í framhaldinu stutt námskeið í pörunarforritum eins og Swiss Manager. Námskeiðið verður nánar kynnt í byrjun næsta árs.
Skáksambandið vill jafnframt vekja athygli á því að febrúar stendur til að halda FIDE-arbiter námskeið í umsjón Omars Salama.
Áhugasamir eru beðnir um að tilkynna það í netfangið skaksamband@skaksamband.is. Verður nánar kynnt á nýju ári.
- Auglýsing -














