Það var Stephan Briem sem kom sá og sigraði á fjölmennu og skemmtilegu Jólahraðskákmóti TR – Ríkharðsmótinu þar sem teflt er til minningar um Ríkharð Sveinsson á afmælisdegi hans 28. desember. Sérlega gaman að Stephan skildi vinna mótið því afi hans, Stefán Briem vann einmitt mótið fyrir 56 árum. Guðrún systir hans tók svo þriðja sætið þannig að þetta var sannkallaður fjölskyldusigur hjá Briem-genginu.
Mótið var fjölmennt en þó vantaði tilfinnanlega stórmeistara á mótið að þessu sinni. Fjölmargir titilhafar mættu þó til leiks og landsliðsmaðurinn Dagur Ragnarsson stigahæstur keppenda.
Halldór, sonur Ríkharðs lék fyrsta leiknum fyrir frænda sinn, Svein Inga Sveinsson.

Dagur Ragnarsson tapaði sinni skák óvænt í fyrst umferð og það var Stephan Briem sem fór best úr rásholunum og hafði 5 vinninga eftir 5 skákir. Leikar jöfnuðust aðeins og Dagur náði honum og Halldór Grétar Einarsson einnig eftir 7 umferðir, höfðu þeir allir 6 vinninga.

Jafntefli Dags og Stephan leyfði Halldóri að taka forystuna stundarkorn með hálfs vinnings forskot en svo tók Dagur við og hafði hálfs vinnings forskot þar til Guðrún Fanney Briem kom bróður sínum til bjargar, náði að vinna Dag með ótrúlegri seiglu í lokaumferðinni og um leið koma sjálfri sér á verðlaunapall.

Efstu þrír því:
- Stephan Briem 8,5 vinningar af 11 (74 oddastig)
- Dagur Ragnarsson 8,5 vinningar af 11 (70,5 oddastig)
- Guðrún Fanney Briem 8,5 vinningar af 11 (70 oddastig)
Stephan Briem er því skákmaður númer tvö sem fær nafn sitt á Ríkharðsbikarinn en Örn Leó Jóhannsson var sá fyrsti til að fá nafn sitt á bikarinn í fyrra.
Stemmingin í Feninu var skemmtileg, menn tefldu, spjölluðu, fengu sér kaffi, skoðuðu myndaalbúm og fylgdust með Heimsmeistaramótinu í Doha. Sannkölluð skák- og fjölskyldustemming sem er vonandi komin til að vera á þessum degi!
Myndir




















