Ólympíumót 16 ára og yngri hefst í dag í Tyrklandi. Andsæðingar í fyrstu umferð verða Serbar. Fréttafulltrúi Skák.is í Konya, Kjartan Briem, þar sem mótið fer fram hefur sent nokkrar línur.
Hópurinn lenti í Konya kl. 23:00 í gær laugardag og hefur leik í dag kl. 12:00 að íslenskum tíma. Ferðalagið gekk að mestu vel og allir búnir að hvílast nokkuð vel.
Fulltrúar Íslands:
Keppendur: Vignir Vatnar Stefánsson, Stephan Briem, Birkir Ísak Jóhannsson, Arnar Milutin Heiðarsson og Batel Goitom Haile.
Liðsstjóri: Helgi Ólafsson
Aðrir „Fulltrúar“: Kjartan og Goitom
Það er ljóst að um nokkra áskorun er að ræða fyrir hópinn , liðið er rankað 33 af 47 liðum. En eins og reynsluboltarnir segja þá er skákin harður skóli og þetta mót því tilvalið til að öðlast reynslu gegn sterkum andstæðingum og gera sér grein fyrir hvert verkefnið til framtíðar er.
Aðstæður eru allar hinar bestu, hótelið er fyrsta flokks og aðstæður í skáksal eins og þær gerast bestar.
- Heimasíða mótsins
- Chess-Results
- Beinar útsendingar hefjast kl. 12.















