Hraðskákkeppni taflfélaga 2026 fer fram í glæsilegu og rúmgóðu húsnæði Borgarholtsskóla í Grafarvogi þriðjudaginn 17. febrúar, klukkan 19:00 – 22:00. Skákdeild FJÖLNIS heldur mótið líkt og sl. ár. Nægt pláss – næg bílastæði og hvert skákfélag getur skráð til leiks fleiri en eina skáksveit.
Þátttökugjöld : A sveit 12:000 kr B sveit 8000 kr C sveit 5000 kr
11 umferðir og tímamörkin 3-2 ef 15 sveitir eða fleiri mæta til leiks. Annars 9 umferðir og tímamörkin 4-2. Hver sveit er skipuð 6 mönnum auk varamanna. Varamaður kemur ávallt inn á neðsta borð.
Séu tvö eða fleiri lið efst og jöfn af liðsstigum (Match points) skulu tvö efstu liðin að loknum oddastigareikningi (þar gilda vinningar fyrst) tefla til úrslita um titilinn. Verði jafnt 3-3 gildir oddatigaútreikningur.
Kaffi-og veitingasala á staðnum.
Skráning lýkur mánudaginn, 16. febrúar kl. 13.
Góð æfing og liðsuppstilling fyrir Íslandsmótið í mars – Söfnum í sveitir og eigum saman fjörugt mót og skemmtilega hraðsveitakeppni
Skákdeild Fjölnis















