Hörgsveitungurinn og FIDE-meistarinn Símon Þórhallsson varð í dag Akureyrarmeistari í skák í fyrsta sinn. Fyrir síðustu umferð var hann jafn sínum gamla bekkjarbróður FM Jóni Kristni Þorgeirssyni í efsta sæti en þeirra biðu misjöfn örlög. Á meðan Símon neytti aflsmunar í skák sinni gegn Rúnari Ísleifssyni, lenti Jokko í hremmingum gegn IM Áskeli Erni. Í óljósri miðtaflsstöðu þar sem keppendur voru að egna lið sitt til sóknar hvort á sínum vængnum fórnaði Áskell peði fyrir óljós færi. Reyndar gat Jokko valið milli tveggja hvítra peða og gleymdi því að annað var baneitrað. Hann drap einmitt það peð og þá var fjandinn laus hjá öldungameistaranum sem náði óstöðvandi mátsókn. Þannig fór um sjóferð þá og Símon vann mótið eins og öll önnur meiriháttar mót sem hann hefur tekið þátt í undanfarna mánuði. Hann vann sex skákir af sjö, tapaði aðeins fyrir Jóni Kristni í næstsíðustu umferð.
Önnur úrslit:
Markús-Benedikt 1-0
Smári-Karl 1-0
Eymundur-Nökkvi 1-0
Baldur-Valur Darri 0-1
Galaad-Harpa 0-1
Sigþór-Björgvin 1-0
Sigurður-Tobias 1-0
Viacheslav-Kristian 1/2
Dominik-Ruruk 1/2
Efstu menn sem hér segir:
Símon 6, Jón Kristinn, Áskell og Markús 5, Smári 4,5.
Efstur yngri iðkenda – barna á grunnskólaaldri – sem voru alls 10 af 22 keppendum – varð Valur Darri Ásgrímsson. Akureyrameistaratitlar í yngri flokkum verða hinsvegar ekki krýndir fyrr en eftir meistaramót hinna yngri um miðjan mars.
Lokastaðan og öll úrslit að venju á chess-results














