Undanúrslit Síminn Invitational í netskák kláruðust í gærkvöld með tveimur skemmtilegurm viðureignum. Það verða þeir Björn Þorfinnsson og Vignir Vatnar Stefánsson sem mætast í úrslitum í næstu viku.

Gangur mála í einvígjunum fer hér eftir, en hægt er að horfa á alla útsendinguna í YouTube vídeóinu fyrir neðan!

Í fyrra einvíginu mættust þeir Björn Þorfinnsson og Jón Kristinn Þorgeirsson. Björn fór betur af stað, vann fyrstu skákina og komst svo í 3-1 og virtist ætla að sigla þessu heim. Þá fór Jokkó í gang og jafnaði metin 3-3 eftir skemmtilegar sviptingar. Í bráðabanaskákinni virtist Jokkó vera búinn að tryggja sér vinning en missti þráðinn á ögurstundu og Björn endaði á að sigra með minnsta mun 4-3.

Í síðara einvíginu mættust Vignir Vatnar og Ingvar Þór Jóhannesson. Vignir talinn sigurstranglegri fyrirfram og sýndi hann sína styrkleika í fyrstu skákinni þegar hann kreysti fram vinning í jafnteflislegu endatafli. Miklar sviptingar voru í skák tvö en aftur var Vignir betur á tánum og komst í 2-0. Ingvar komst á blað í þriðju skákinni en Vignir kláraði svo dæmið og vann 3,5-0,5 sanngjarn sigur.

Skákskýringar að þessu sinni voru í höndum Björns Ívars og samfélagsmiðlastjörnunnar Gauta Páls Jónssonar.

Útsendingu kvöldsins er hægt að sjá hér:

Almennt um mótið:

Mótið er í umsjón Rafíþróttasambands Íslands í nánu samstarfi við Skáksamband Íslands. Beinar útsendingar verða á Símanum Sport. Aðrir styrktaraðilar eru Collab, Ljósleiðarinnn og Lengjan.

Almennt er hægt að fylgjast með á Sjónvarpi Símans eða á YouTube rás RÍSÍ eða Twitch Rási RÍSÍ

Harpa Ingólfsdóttir Gígja er efst í Draumaliðsdeildinni. Staðan í Draumaliðsdeildinni.

Í úrslitum verður 10 skáka einvígi – sá vinnur sem fyrr fær 5½ vinning.

Verðlaun í aðalkeppninni

  1. 200.000 kr
  2. 100.000 kr.
  3.   25.000 kr
  4.   25.000 kr.
- Auglýsing -