Bandaríski stórmeistarinn Fabiano Caruana og ungi Úzbekinn Javokhir Sindarov hafa tekið forystu á Áskorendamótinu. Báðir unnu þeir sínar skákir í dag og hafa vinnings forskot á aðra keppendur þar sem Sindarov lagði Praggnanandhaa að velli sem var eini skákmaðurinn fyrir utan hina tvo sem hafði unnið skák á mótinu. Í kvennaflokki fengum við loksins úrslit en allar skákir fram að þessu höfðu endað með jafntefli!
Hér fyrir neðan förum við yfir skákir dagsins og helstu atvik.
Opinn flokkur
Skemmtilegur dagur með tveimur sigurskákum eftir gleðisnauðan jafnteflisdag í gær!
Caruana – Wei Yi
Greinilegt var að Wei Yi kom Caruana í opna skjöldu í byrjuninni, eitthvað sem gerist ekki allt of oft. Kínverjinn fórnaði tveimur peðum en fékk fullar bætur samkvæmt tölvuforritum, betri liðsskipan, biskupaparið og hvíti kóngurinn strandaglópur á miðborðinu. Allt benti til að við værum að fara í spennandi skák…en þá…
17…Re5? 18.Rxe5 Hxd5 19.Rd1! og biskupinn á h3 á enga reiti! Að mörgu leiti má segja að fyrir Caruana hafi Wei Yi legið til allra átta eftir þetta!
Nakamura – Giri
Nakamura varð ekkert ágengt gegn traustri taflmennsku Giri. Ef eitthvað þá var Giri með örlítið betra en jafnteflið virtist alltaf nokkuð öruggt. Menn spyrja sig hvort þátttaka Nakamura á „Mikka-mús“ mótum sé að koma í bakið á honum og honum vanti fleiri þungavigtarskákir í aðdraganda mótsins!?
Praggnanandhaa – Sindarov
Áhugaverð viðureign þar sem mætast tveir skákmenn í efsta sæti, unnu báðir í fyrstu umferð. Sindarov sýndi að hann er ekki fæddur hræddur og í stað þess að tefla af öryggi fórnaði hann óhræddur manni með svörtu mönnunum fyrir frumkvæðið. Pragga náði ekki tökum á vörninni og má segja að hann hafi lenti í Praggnanandláti undan sóknartilburðum Sindarov. Nær Sindarov að gera atlögu á þessu móti? Sannarlega sterk byrjun hjá honum og sigur með svörtu gegn einum af oddafiskunum eru eftirtektarverð úrslit!
Kvennaflokkur:
Tvö úrslit komu í hús í kvennaflokki.
Zhu Jiner – Bibisara
Zhu Jiner hefur nú misst niður þrjár vænlegar stöður í fyrstu umferðunum og hefur aðeins einn vinning eftir þrjár umferðir. Mikið áhyggjuefni fyrir þá kínversku.
33…Hh1+ var skemmtilegur og í kjölfarið komu kaup og svartur fékk unnið endatafl
Tan Zhongyi – Lagno
Lagno náði að leggja Zhongyi að velli með svörtu. Staða hvíts varð full losaraleg í miðtaflinu og Lagno lét til skarar skríða.
22…Re3+ var fallegt línurof og hvíta staðan hrundi
Hinar skákirnar í kvennaflokki enduðu með jafntefli.
Staðan:
Standings | After Round 3 | FIDE Candidates & Women’s Candidates 2026
🇺🇿 Javokhir Sindarov and 🇺🇸 Fabiano Caruana share the lead in the FIDE Candidates, while 🇰🇿 Bibisara Assaubayeva and Kateryna Lagno hold the joint lead in the FIDE Women’s Candidates.#FIDECandidates… pic.twitter.com/g4k5sFIQUT
— International Chess Federation (@FIDE_chess) March 31, 2026
Tenglar:
Um mótið:
Kandidatamót FIDE fara fram á Kýpur, bæði í opna flokknum og kvennaflokki. Mótin eru lokastig í baráttunni um það hver fær að skora á heimsmeistarana í klassískri skák. Keppt er með átta keppendum í hvorum flokki, tvöfaldri umferð, allir við alla (round-robin). Alls eru tefldar 14 umferðir, og stendur dagskráin frá 29. mars til 15. apríl með hvíldardögum inn á milli. Bráðabanar fara fram 16. apríl ef þörf er á!
Í opna mótinu eru meðal keppenda Fabiano Caruana, Hikaru Nakamura og Anish Giri ásamt mönnum á borð við Wei Yi, Praggnanandhaa R, Javokhir Sindarov, Andrey Esipenko og Matthias Bluebaum, og sigurvegarinn fær réttinn til að tefla um heimsmeistaratitilinn gegn Gukesh Dommaraju síðar á árinu.
Í kvennaflokki er baráttan ekki síður hörð, með nöfnum eins og Zhu Jiner, Tan Zhongyi, Aleksandra Goryachkina og Kateryna Lagno í fremstu röð, og sigurvegarinn fær að skora á heimsmeistarann Ju Wenjun. Anna Muzychuk kom inn í mótið sem varamaður eftir að Koneru Humpy dró sig út.














