Annar keppnisdagur á Evrópumóti einstaklinga í Katowice í Póllandi fór fram í dag. Íslensku keppendurnir áttu góðan dag, Vignir Vatnar og Hilmir Freyr eyddu andstæðingum sínum í rétt yfir 20 leikjum, Josef Omarsson vann góðan sigur með svörtu en Hannes Hlífar var sá eini sem tapaði

Zurab forseti ECU mætti og fylgdist með Vigni og fleirum!

Vignir hafði hvítt gegn Chessable höfundinum Kamil Plichta, en hann er þekktur sem afkastamikill höfundur byrjananámskeiða, þar sem hann leggur áherslu á beittar, frumlegar og hagnýtar leiðir í byrjun tafls. Meðal efnis sem hann hefur gefið út eru byrjanakerfi um 1.d4, frönsku vörnina, Accelerated Dragon og 1.e4 e5, auk sérhæfðra námskeiða um meðal annars Budapest-gambít og Damiano Petroff. Skv. Vigni hefur hann líka fjallað um þessa …h6 leið sem hann beitti gegn Vigni í dag.

Skákin fór beint í farveg Catalan afbrigðisins og í raun Bluebaum afbrigðið með þessa auka leiki a3 og …h6. Vignir og Birkir Ísak með eitthvað eldhúsbrugg tilbúið gegn Plichta. Svarta staðan varð fljótt erfið og nánast óteflandi. Hvíta staða Vignis hafði allt rýmið á borðinu og menn svarts slakir, hrókur fastur á h7 og í ofanálag missti svartur mann.

Í raun algjör pökkun og Vignir með 2 af 2!

Hannes Hlífar mætti Evrópumeistaranum frá 2024, Serbanum Aleksandar Indjic (2616). Indjic er hörkuskákmaður og varð jafnframt í sigurliði Serba á EM landsliða 2023 í Svartfjallalandi. Upp kom Nimzo-indversk vörn og fékk Indjic aðeins betra tafl lengst af og vann peð en engu að síður virtist Hannes hafa nægjanlega virkni til að halda taflinu en Indjic reyndist á endanum seigari og náði svíðingnum.

Hilmir mætti Þjóðverja Andreas Gikas (2072) og sá tefldi Alekhins-vörn og veifaði í raun rauða flagginu framan í Hilmi sem leiðist ekki að tefla hvasst. Hilmir braust skemmtilega í gegn í 19. leik

19.Rxf7! og skákin varð ekkert mikið lengri, kóngsstaða svarts einfaldlega vonlaus.

Josef Omarsson náði góðum sigri með svörtu gegn ungum pólskum FIDE-meistara Patryk Rekuc (2280). Josef hefur teflt kóngsindverjann mikið í gegnum tíðina og sú reynsla greinilega skilaði sér í þessari skák. Baráttan var hörð en undir lok fyrstu tímamarka náði Josef taktísku skoti í tímahraki Pólverjans. Flottur og mikilvægur sigur á svo erfiðu móti sem gefur Josef vonandi sjálfstraust fyrir framhaldið.

Þriðja umferð er tefld á morgun og hefst 15:00 að staðartíma. Vignir hefur svart gegn pólskum skákmanni Piotr Brezina (2327), Hannes hefur hvítt gegn Grikkja Kosmas-Lekkas (2195) og því miður mætast Josef og Hilmir í þriðju umferðinni sem er verulega þreytt pörun fyrir báða!

Um mótið:

Evrópumót einstaklinga fer fram í Katowice í Póllandi 7-19. apríl en teflt er á hverjum degi en frídagar 11. og 17. apríl. Tefldar eru 11 umferðir um Evrópumeistaratitilinn og jafnframt sæti á Heimsbikarmótinu, mikið í húfi. Sætin eru eftirsótt þar sem Heimsbikarmótið er ávallt eitt vinsælasta mótið þegar það fer fram (annað hvert ár) og jafnframt getur það verið leið til að komast á Áskorendamótið (sem er nú í gangi).

Alls taka 501 skákmenn þátt á mótinu og eru íslensku keppendurnir fjórir. GM Vignir Vatnar Stefánsson (2512) er númer 74 í stigaröðinni, GM Hannes Hlífar Stefánsson (2414) er númer 154 í stigaröðinni, IM Hilmir Freyr Heimisson (2297) er númer í 256 stigaröðinni og Josef Omarsson (2045) er númer 400 í stigaröðinni. Stigahæstur er Igor Kovalenko (2685) frá Úkraínu.

Íslensku keppendurnir eru (sjá myndband):

 

- Auglýsing -