Skólaskákmót Norðurlands eystra fór fram á Akureyri í gær, 10. apríl. Alls mættu 20 keppendur til leiks í þremur aldursflokkum. Aðeins sex skólar sendu keppendur til mótsins sem verður að teljast heldur slakt og bersýnilegt að skólaskákin er í lægð hér á svæðinu um þessar mundir. Um leið er ástæða til að hrósa þeim sem ákváðu nú að taka þátt, ekki síst þeim sem komu um langan veg til að iðka þessa göfugu íþrótt.
Fyrst var teflt í yngsta flokki 1-4. bekk. Þar voru sex kappar mættir og baráttan um efsta sætið tvísýn og réðist ekki fyrr en í lokaumferðinni:
| Fannar Breki Svansson | Brekkuskóla | 2016 | 1 | ½ | 1 | 1 | 1 | 4,5 | |
| Rósant Ari Salvarsson | Brekkuskóla | 2016 | 0 | 1 | ½ | 1 | 1 | 3,5 | |
| Blær Thoroddsen | Brekkuskóla | 2018 | ½ | 0 | 0 | 1 | 1 | 2,5 | |
| Gabríel Geir Sigurgeirsson | Oddeyrarskóla | 2016 | 0 | ½ | 1 | 0 | 1 | 2,5 | |
| Andri Fannar Gíslason | Brekkuskóla | 2016 | 0 | 0 | 0 | 1 | 1 | 2 | |
| Birnir Óskar Bjarnason | Valsárskóla | 2019 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 |
Flestir mættu til leiks á miðstigi, 5-7. bekk. Þar voru tefldar sex umferðir og má segja að úrslitin hafi ráðist í skák Nökkva Más og Hörpu Hrafneyjar. Þar var lengi tvísýnt um úrslit en á endanum hafði Nökkvi betur:
| Nökkvi Már Valsson | Brekkuskóla | 2015 | 6 |
| Harpa Hrafney Karlsdóttir | Lundarskóla | 2013 | 5 |
| Björgvin Elvar Björgvinsson | Brekkuskóla | 2015 | 4 |
| Egill Eggertsson | Brekkuskóla | 2013 | 4 |
| Ingvar Smári Albertsson | Þórshafnarskóla | 2015 | 3 |
| Frosti Snær Ingason | Oddeyrarskóla | 2015 | 3 |
| Elías Steinarsson | Lundarskóla | 2014 | 3 |
| Dominik W Wielgus | Oddeyrarskóla | 2015 | 3 |
| Sigurbergur Axelsson | Þórshafnarskóla | 2014 | 2 |
| Benedikt Halldórsson | Þórshafnarskóla | 2014 | 2 |
| Viktor Smári Eyjólfsson | Valsárskóla | 2015 | 1 |
Á unglingastigi (8-10. bk)mættu þrír vaskir piltar til leiks og er reyndar þessi elsti flokkur iðulega fámennastur. Þeir tefldu tvöfalda umferð um sigurinn. Gekk þar á ýmsu en að endingu naut Sigþór Árni reynslu sinnar og vann allar skákirnar:
| Sigþór Árni Sigurgeirsson | Oddeyrarskóla | 2011 | 4 |
| Kristian Mar Bernharðsson | Síðuskóla | 2011 | 2 |
| Jökull Máni Viðarsson | Brekkuskóla | 2010 | 0 |















