Vestfjarðamótið í skólaskák fór fram í Edinborgarhúsinu á Ísafirði 14. apríl.
Þetta er annað árið í röð sem mótið er haldið, eftir að það var endurvakið í aðdraganda Landsmótsins á Ísafirði vorið 2025. Skákfélag Vestfjarða sá um mótshaldið.
Fjórir efnilegir keppendur tefldu í yngsta flokki (1.-4. bekk) og varð mótið hjá þeim æsispennandi. Tefld var tvöföld umferð og fyrir seinustu umferð áttu allir fjórir ennþá möguleika á að landa sigrinum!
Að lokum urðu Hilmir Örn Atlason (2. bekk GÍ) og Bjartur Hauksson (3. bekk GÍ) efstir og jafnir með 4 vinninga. Gripið var til þess að tefla tveggja skáka bráðabana. Þar unnu Hilmir og Bjartur báðir sitt hvora skákina og þurfti því að tefla eina skák í viðbót til að útkljá efsta sætið. Hilmir sigraði örugglega í seinustu skákinni og tryggði sér titilinn.
Eysteinn Galti Gylfason (3. bekk GÍ) og Valdemar Leó Jónsson (2. bekk GÖ) enduðu jafnir í 3.-4. sæti með 2 vinninga hvor. Eysteinn hafði betur í tveggja skáka bráðabana um bronsverðlaunin.
Karma Halldórsson sigraði í miðflokki (5.-7. bekk) og Nirvaan Halldórsson sigraði í elsta flokki (8.-10. bekk). Þeir bræður fengu því miður enga mótspyrnu að þessu sinni þar sem aðrir keppendur skráðu sig ekki til leiks í eldri flokkunum.



















