Það var mikið fjör í landsmótinu í skólaskák í Ólafsvík, sem Skáksambandið heldur í góðu samstarfi við Skákfélag Snæfellsbæjar. 36 krakkar mættu til leiks frá öllum landshornum en öll gömlu svæðamótin voru á sínum stað í ár. Orðið langt síðan síðast!
Aðstæður eru frábærar í félagsheimilinu Klifi, en í dag var fyrri keppnisdagurinn af tveimur. Sumir keppenda og aðstandendur kannast við keppnissalinn frá Ottó-mótunum, en þarna eru reglulega haldin vegleg mót. Ólsarar eiga þakkir skildar fyrir gott skipulag og veitingar meðfram mótinu, pizzaveislu eftir sjöttu umferð og kökur og kræsingar meðfram umferðunum. Krakkarnir halda vel hópinn og spila fótbolta eftir umferðir og hafa gaman að þessu eins og á að hafa!

Það er ekkert grín að tefla sex atskákir í röð en krakkarnir stóðu sig vel þó þau mættu stundum nota tímann sinn betur. Stundum er í lagi að sitja á höndum sér.
Eftir að mótið er rúmlega hálfnað (síðustu fimm skákirnar eru á morgun) þá er staðan svona:
1.-4. bekkur
1.-2. sæti: Eiður Jökulsson Ártúnsskóla og Helgi Fannar Óðinsson Norðlingaskóla með 6 vinninga.
3. sæti Dagur Sverrisson Vesturbæjarskóla með 5 vinninga.
1.-4. bekkur á chess-results.
5.-7. bekkur
1.-2. sæti: Pétur Úlfar Ernisson Langholtsskóla og Karma Halldórsson Grunnskólanum á Ísafirði með 6 vinninga.
3. sæti Haukur Víðis Leósson Hlíðaskóla með 5 vinninga.
5.-7. bekkur á chess-results.
8.-10. bekkur
1. sætI. Örvar Hólm Brynjarsson Lindaskóla með 6 vinninga.
2. sæti: Theódór Eiríksson Foldaskóla með 5.5 vinning.
3. Guðrún Fanney Briem Kóraskóla með 4.5 vinning.
8.-10. bekkur á chess-results.

Þótt þessi staða gefi einhverjar vísbendingar þá er vissulega mótið alls ekki búið og margar lykilviðureignir eftir í öllum flokkum, sem munu hafa áhrif á stöðuna. Búast má við mikilli einbeitingu af skákinni á morgun! Á morgun hefjast leikar klukkan 11:00.
Annar mótshaldara frá Reykjavík, Daði Ómarsson, hafði frumkvæði að því að hafa átta skákir í hverri umferð í beinni útsendingu. Það hefur gengið vel og á lichess er hægt að skoða þessar skákir. Í hverri umferð eru sýndar þrjár skákir úr elsta og miðjuflokknum, og tvær skákir úr yngsta flokknum.
Hér má sjá myndband frá Tómasi Tandra, stjórnarmanni í SÍ frá fyrsta keppnisdegi.
Og hér eru myndir á Flickr síðu SÍ frá fyrsta keppnisdegi. Hægt er að fletta með örvunum!
9.5.26 – Gauti Páll















