Landsliðseinvaldarnir Helgi Ólafsson (opinn flokkur) og Ingvar Þór Jóhannesson (kvennaflokkur) hafa tilkynnt liðsval sitt en liðin munu taka þátt á Ólympíuskákmótinu sem fram fer í Samarkand í Úsbekistan í september næstkomandi.

Ísland sendir lið til keppni, annars vegar í opnum flokki og hins vegar í kvennaflokki.

Landslið Íslands í opnum flokki:

  • Vignir Vatnar Stefánsson, stórmeistari, 2534 elóstig
  • Jóhann Hjartarson, stórmeistari, 2466 elóstig
  • Hannes H. Stefánsson, stórmeistari, 2409 elóstig
  • Guðmundur Kjartansson, stórmeistari, 2399 elóstig
  • Hilmir Freyr Heimisson, alþjóðlegur meistari, 2309 (Íslandsmeistari)

Kvennalandslið Íslands:

  • Lenka Ptacnikova, stórmeistari kvenna, 2126 elóstig (Íslandsmeistari)
  • Guðrún Fanney Briem, kandídatameistari kvenna, 2026 elóstig
  • Hallgerður Helga Þorsteinsdóttir, fide-meistari kvenna, 1988 elóstig
  • Iðunn Helgadóttir, kandídatameistari kvenna, 1842 elóstig
  • Hrund Hauksdóttir, 1826 elóstig

Liðin eru skipuð í bland reyndum skákmönnum með mikla reynslu af alþjóðlegri keppni, auk ungra og efnilegra keppenda sem hafa verið í mikilli framför á undanförnum árum.

Ólympíuskákmótið er eitt stærsta og mikilvægasta mótið á alþjóðlega skák-dagatalinu og verður spennandi að fylgjast með frammistöðu íslensku liðanna í Úsbekistan í haust.

- Auglýsing -