Fimmta umferð var tefld í dag á EM kvenna sem fram fer í Batumi í Georgíu. Íslandsmeistari kvenna, Lenka Ptacnikova vann sína skák nokkuð örugglega og hefur nú helmingsárangur, 2,5 vinning að loknum fimm umferðum.
Lenka hafði hvítt gegn georgíski skákkonu Tamari Esadze (1974). Lenka fækk þægilegt tafl í byrjuinni og mistök þeirrar georgísku í 13. leik gáfu Lenku kost á taktískum aðgerðum sem heppnuðust vel. Eina sem má út á setja er að 17.Dxh7 var sterkari en 17.Hxd5.
Peð vannst og fljótt tók Lenka til við að plokka fleiri peð af andstæðingi sínum sem reyndi sprikl sem gekk engan veginn upp, styrkleikamunurinn klár!
Sjötta umferð fer fram á morgun en pörun liggur ekki enn fyrir, hægagangur í uppfærslu á chess-results. Fréttin verður uppfærð þegar pörun liggur fyrir.
Alls taka 165 skákkonur þátt á mótinu og þeirra stigahæst er Stavroula Tsolakidou frá Grikklandi. Lenka er númer 102 í styrkleikaröðun á mótinu. Teflt er á hverjum degi, enginn frídagur.
















