Landsliðseinvaldarnir Helgi Ólafsson (opinn flokkur) og Ingvar Þór Jóhannesson (kvennaflokkur) hafa tilkynnt liðsval sitt en liðin munu taka þátt á Ólympíuskákmótinu sem fram fer í Samarkand í Úsbekistan í september næstkomandi.
Ísland sendir lið til keppni, annars vegar í opnum flokki og hins vegar í kvennaflokki.
Landslið Íslands í opnum flokki:
- Vignir Vatnar Stefánsson, stórmeistari, 2534 elóstig
- Jóhann Hjartarson, stórmeistari, 2466 elóstig
- Hannes H. Stefánsson, stórmeistari, 2409 elóstig
- Guðmundur Kjartansson, stórmeistari, 2399 elóstig
- Hilmir Freyr Heimisson, alþjóðlegur meistari, 2309 (Íslandsmeistari)
Kvennalandslið Íslands:
- Lenka Ptacnikova, stórmeistari kvenna, 2126 elóstig (Íslandsmeistari)
- Guðrún Fanney Briem, kandídatameistari kvenna, 2026 elóstig
- Hallgerður Helga Þorsteinsdóttir, fide-meistari kvenna, 1988 elóstig
- Iðunn Helgadóttir, kandídatameistari kvenna, 1842 elóstig
- Hrund Hauksdóttir, 1826 elóstig
Liðin eru skipuð í bland reyndum skákmönnum með mikla reynslu af alþjóðlegri keppni, auk ungra og efnilegra keppenda sem hafa verið í mikilli framför á undanförnum árum.
Ólympíuskákmótið er eitt stærsta og mikilvægasta mótið á alþjóðlega skák-dagatalinu og verður spennandi að fylgjast með frammistöðu íslensku liðanna í Úsbekistan í haust.
- Auglýsing -

















