Alþjóðlegi skákheimurinn er heldur betur lifandi núna. Með forsetakosningar FIDE og ECU framundan er stemningin orðin rafmögnuð. Í gær buðu tveir afar vel efnaðir Þjóðverjar sig fram sem forsetaefni FIDE.

Jan Henric Buettner, þýskur athafnamaður og meðstofnandi Freestyle Chess, bauð sig fram í gær. Buettner hefur verið einn harðasti gagnrýnandi núverandi forseta Arkady Dvorkevich undanfarin misseri. Deilurnar náðu hámarki í viðræðum um viðurkenningu á Freestyle-mótum þar sem Buettner sakaði FIDE um „fjárkúgun“ og fullyrti að samtökin hefðu krafist 500.000 dollara fyrir réttindi til að nota heimsmeistaratitilinn. Samskiptin, sem fóru fram í tölvupóstum og WhatsApp, enduðu með opnu bréfi þar sem Buettner lýsti algjörum skorti á trausti. Síðar náðu aðilum sáttum. Nú hefur hann tilkynnt framboð og með honum er hinn virti Englendingur Malcolm Pein sem frambjóðandi til varaforseta.

Einnig bauð sig fram Wadim Rosenstein, þýskur auðmaður og stofnandi WR Chess. Rosenstein hefur byggt upp metnaðarfull skákverkefni undanfarin ár. En hann kemur ekki inn án farangurs: Árið 2022, stuttu eftir innrás Rússa í Úkraínu, tefldi hann umdeilda skák við Sergey Karjakin í Moskvu. Karjakin var þá bannaður af FIDE fyrir opinberan stuðning við stríðið og skákin vakti mikla athygli og gagnrýni. Rosenstein hefur nú staðfest framboð sitt og það verður forvitnilegt að sjá hvernig „Karjakin-málið“ verður notað á móti honum í kosningabaráttunni. Hann ætlaði líka að bjóða sig fram sem forseti þýska skáksambandsins 2024 en hætti við vegna ásakana um tengsl við Rússland. Frambjóðandi hans náði hins vegar naumlega kjöri í forsetakosningum hjá Þýska skáksambandinu í vor.

Núverandi forseti Arkady Dvorkevich er afar líklegur til að bjóða sig fram aftur, en hann þarf að tefla vörnina vel. ESB hefur verið að ræða mögulegar refsiaðgerðir gegn honum vegna fyrri stöðu hans í ríkisstjórn Rússlands. Þetta gæti skapað alvarleg vandamál – ekki bara pólitísk heldur líka hagnýt, eins og ferðatakmarkanir og mögulega minnkandi stuðningur frá evrópskum samböndum. Sumir segja að þetta geti orðið banabiti fyrir endurkjör hans, en aðrir telja að Rússar og bandamenn þeirra vinni forsetakosningar FIDE eins og vanalega. Spurningin er: hvað gera Rússar ef maður þeirra fær yfir sig refsiaðgerðir? Eru þeir tilbúnir með plan B?

Koma fleiri framboð fram? Hver veit?

Kosningarnar fara fram 26. september 2026 samhliða Ólympíuskákmótinu í Samarkand í Úsbekistan.

Á meðan er minna fjallað um kosningarnar í Skáksambandi Evrópu (ECU), en þar eru þrjú framboð til forseta sem öll eru þegar opinber:

  • Zurab Azmaiparashvili frá Georgíu, núverandi forseti ECU.
  • Bachar Kouatly frá Frakklandi – fyrrverandi varaforseti FIDE. Framboð hans er stutt af áðurnefndum Rosenstein.
  • Lukasz Turlej frá Póllandi. Í liði hans er Gunnar Björnsson sem er í framboði sem gjaldkeraefni Pólverjans.

Kosningarnar í ECU munu skera úr um hvort skák í Evrópu taki nýju stefnu eða haldi áfram á svipaðri braut. Það verður forvitnilegt að sjá hvernig þessi þrjú lið takast á – og hvort einhver óvænt bandalög myndist á milli FIDE- og ECU-frambjóðanda.

Kosningar til ECU fara fram í Búkarest 18. júlí nk.

Áhugaverð refskák framundan?

- Auglýsing -