Afmælisskákmót Halldórs Grétars Einarssonar fór fram í Golfskálanum í Bolungarvík laugardaginn 4. júlí við glæsilegar aðstæður. Mótið var haldið í tilefni sextugsafmælis Halldórs og var vel sótt af bæði keppendum og áhorfendum.
Bolungarvík skartaði sínu fegursta í einstöku sumarveðri og skapaði það skemmtilegan ramma utan um mótið. Fjöldi áhorfenda lagði leið sína í Golfskálann til að fylgjast með spennandi skákum og óska afmælisbarninu til hamingju með tímamótin.
Keppnin var hörð og jöfn allt til loka. Sigurvegari mótsins varð Magnús Pálmi Örnólfsson, sem hlaut 8,5 vinninga af 9 mögulegum. Afmælisbarnið, Halldór Grétar Einarsson, hafnaði í öðru sæti með 8 vinninga af 9, eftir frábæra frammistöðu. Í þriðja sæti varð Guðmundur Halldórsson með 6 vinninga af 9.
Mótið var sem fyrr segir til heiðurs Halldórs Grétars, sem um áratugaskeið hefur lagt íslenskri skákhreyfingu lið með margvíslegum hætti. Hann hefur meðal annars setið í stjórn Skáksambands Íslands, stofnað skákdeild Breiðabliks, sinnt þjálfun og skákmannahaldi og skrifað fjölda greina um skák í gegnum tíðina. Framlag hans hefur haft jákvæð áhrif á ótal skákmenn og íslenskt skáklíf.
Sjá nánar um mótið á Chess-results.


















