Föstudaginn 10. júlí næstkomandi verður hraðskákmót á barnum Leyni, Hafnarstræti 95, á Akureyri. Skákfélag Akureyrar heldur mótið og hefst það 17:00. Tímamörk verða 4+2. Mótið er reiknað til hraðskákstiga. Tefldar verða sjö umferðir nema 12 eða færri mæti til leiks, þá tefla allir við alla.

- Auglýsing -


















