Helgina 10-12 júlí fór annað mót í mótaröð Sumarsyrpu Taflfélagsins.
Góð mæting var þrátt fyrir að vera komið inn i júlí mánuð sem hefur sögulega verið mjög rólegur skákmánuður og voru 39 keppendur skráðir til leiks.
Mótið var að þessu sinni óvenju spennandi og voru efstu keppendur að vinna hvorn annan þvers og kruss.
Fyrir lokaumferðina voru fimm keppendur efstir og jafnir með 4½ vinning, Anh hai, Jóel Helmer, Eiður, Katrín Ósk og Servin Joyal.
Í lokaumferðinni vann Anh Hai sína skák gegn Eiði, Jóel vann Servin Joyal. Loka skákin í mótinu til að klárast var skák Katrinu Ósk og Halldóru Jónsdóttur þar sem Halldóra hafði betur.
Anh Hai og Jóel Helmer enduðu tveir jafnir með 5½ vinning. Þeir voru jafnir á fyrstu oddastigum en Jóel reyndist einu stigi yfir á oddastigum tvö sem veitti honum sigur á mótinu.
Á eftir þeim komu Halldóra, Óðinn Darri og Miroslava sem vann sína skák gegn Degi. Þau enduðu öll jöfn með 5 vinninga. Eftir stigaútreikning var það Halldóra sem endaði efst á stigum og fékk fyrr það þriðja sætið
🥇Jóel Helmer Tobiasson 5½ (29)
🥈Anh Hai Tran 5½ (28)
🥉Halldóra Jónsdóttir 5
🥇Halldóra Jónsdóttir 5 (24½)
🥈Miroslava Skibinia 5 (23½)
🥉Katrín Ósk Tómasdóttir 4½
Taflfélag Reykjavíkur vill þakka keppendum fyrir þátttöku á mótinu og vonast til að sjá sem flesta á næsta móti í Sumarsyrpunni. Síðasta mót Sumarsyrpunnar verður haldið helgina 7-9 ágúst.
Hægt er að sjá lokastöðu mótsins á úrslitasíðu mótsins á Sumarsyrpa TR II 2026
Hægt er að sjá myndir frá mótinu á Ljósmyndasíðu Skáksambands Íslands
















