Omar Salama (2187), Sverrir Örn Björnsson (2071) og Jósef Omarsson (2064) sitja að tafli í Brussel í Belgíu. Í fyrstu umferð sem fram fór í gær unnu Omar og Sverrir en Jósef varð að sætta sig við jafntefli. Tvær umferðir eru tefldar í dag. Sverrir mætir engum öðrum en lettneska stórmeistaranum Normunds Miezis (2399) í fyrri umferð dagsins.

Sverrir og Miezis í beinni

Alls taka þátt 212 skákmenn frá 26 löndum og þar af fimm stórmeistarar í flokki þeirra félaga. Þeir eru nr. 35, 70 og 76 í stigaröð keppenda. Mótið fer fram 8.-14. ágúst – sjö umferðir á níu dögum

- Auglýsing -