Stórmeistarinn Hannes Hlífar Stefánsson (2421) situr að tafli á alþjóðlegu móti á eyjunni La Palma á Kanaríeyjum þessa dagana. Í gær fóru fram 3. og 4. umferð og hlaut Hannes 1½ í skákunum tveimur. Hannes hefur 3 vinninga og hefur enn ekki náð að blanda sér í toppbaráttuna.
Fimmta umferð hefst kl. 16 í dag.
Hannes í beinni frá fimmtu umferð
Hannes er nr. 10 í stigaröð 147 keppenda frá 14 löndum. Meðal keppenda eru 11 stórmeistarar og þeirra stigahæstur er Spánverjinn Eduardo Iturrizaga Bonelli (2582). Mótið fer fram 7.-14. ágúst. Tíu umferðir á átta dögum.
- Auglýsing -
















