Níu íslenskir keppendur taka þátt í mótinu. Stórmeistarinn Vignir Vatnar Stefánssnon (2529) er á toppnum með 5½ vinning að lokinni sjöttu umferð en tvöfaldur dagur fór fram í gær. Fyrir jafnteflið í sjöttu umferð hafði Vignir unnið alls átta skákir í röð.
Íslandsmeistarinn Hilmir Freyr Heimisson (2338) er næstefstur íslensku keppendanna með 4½ vinning. Oliver Aron (2262) og Alexander Oliver hafa 4 vinninga. Allir verða þeir í beinni frá sjöundu umferð á morgun.
Frídagur er í dag sem er nokkuð sérstakt. Sjöunda umferð fram á morgun.
Úrslit síðustu umferðar og pörun næstu umferðar
Alls taka þátt 162 skákmenn frá 28 löndum. Þar af eru fjórir stórmeistarar. Vignir er stigahæstur keppenda. Íslandsmeistarinn er 15 í stigaröð keppenda og Oliver nr. 18.
Split Open fer fram í Króatíu dagana 6.-14. ágúst. 10 umferðir á 9 dögum (einn frídagur).
















