Sverrir Örn, Omar, Jósef og Björn Freyr

Omar Salama (2187), Sverrir Örn Björnsson (2071) og Jósef Omarsson (2064) sitja að tafli í a-flokki Brugse Meesters í Brugge í Belgíu. Björn Freyr Björnsson (2126) tekur þátt í flokki 50+.

Næstsíðasta umferð – nánar tiltekið áttunda umferð  a-flokki í og 6. umferð í 50+ flokki fór fram í gær.  Jósef og Björn Freyr unnu sínar skákir.

Níunda og síðasta umferð hófst kl. 8 í morgun.

Jósef hefur 5 vinninga og Sverrir Örn 4 vinninga.

Alls taka þátt 212 skákmenn frá 26 löndum og þar af fimm stórmeistarar í flokki þeirra félaga. Þeir eru nr. 35, 70 og 76 í stigaröð keppenda. Mótið fer fram 8.-14. ágúst – sjö umferðir á níu dögum

——————-

Í flokki 50 ára og eldri eru engir tvöfaldar dagar og tefldar sjö umferðir. Björn er fjórði stigaröð keppenda.

Björn Freyr vann í gær. Hann hefur 4½ vinning eftir 6 umferðir og er skiptu öðru sæti fyrir lokaumferðina. Hann teflir við forystusauðinn og góð úrslit tryggja honum gott lokasæti.

——————-

- Auglýsing -