Stórmeistarinn Hannes Hlífar Stefánsson (2421) situr að tafli á alþjóðlegu móti á eyjunni La Palma á Kanaríeyjum þessa dagana. Í gær gerði hann jafntefli við franska alþjóðlega meistaranum Mathieu Phileas (2404)
Hannes hefur 6½ vinninga eftir níu umferðir og er í skiptu fimmta sæti. Vinningi á eftir efstu mönnum. Hannes hefur ekki tapað skák en hefur ekki unnið nógu margir skákir til að vera í baráttunni um toppsætið.
Lokaumferðin hófst kl. 8:30.
Hannes í beinni frá lokaumferðinni
Hannes er nr. 10 í stigaröð 147 keppenda frá 14 löndum. Meðal keppenda eru 11 stórmeistarar og þeirra stigahæstur er Spánverjinn Eduardo Iturrizaga Bonelli (2582). Mótið fer fram 7.-14. ágúst. Tíu umferðir á átta dögum.
- Auglýsing -

















