Skákfélag Mosfellsbæjar stendur fyrir skákmóti á bæjarhátíðinni Í túninu heima, þar sem teflt verður um titilinn Skákmeistari Mosfellsbæjar 2026.

Tefldar verða 7 umferðir með tímamörkunum 4 mínútur + 3 sekúndur á leik á mann. Mótið verður reiknað til alþjóðlegra hraðskákstiga.

📍 Staður: Þverholt 2 – fyrir framan Bókasafn Mosfellsbæjar
📅 Dagsetning: Sunnudagurinn 30. ágúst 2026
🕦 Tími: Kl. 11:30

🥐 Veitingar verða í boði fyrir keppendur frá okkar allra besta Mosfellsbakaríi.

🏆 Verðlaun

🥇 1. sæti – innrömmuð ljósmynd af Úlfarsfelli
🥈 2. sæti – innrömmuð ljósmynd af Reykjafelli
🥉 3. sæti – innrömmuð ljósmynd af Helgafelli

Myndirnar eru frá Artiq.is.

Mótið var vel sótt í fyrra þegar um 40 keppendur á öllum aldri og getustigum mættu til leiks. Það væri frábært að sjá enn fleiri í ár!

Núverandi Skákmeistarar Mosfellsbæjar eru FIDE-meistararnir Oliver Aron Jóhannesson og Örn Leó Jóhannsson.

♟️ Allir velkomnir – endilega skráið ykkur sem fyrst „hér

 

- Auglýsing -