Skákþingi Norðlendinga sem vera átti í apríl, en var þá frestað verður haldið, 18.- 20. sept. í Menningarhúsinu Miðgarði í Varmahlíð og hefst með hraðskákmóti föstudaginn 18. kl. 20.00. Tímamörk verða 3+2 og umferðafjöldi getur ráðist af þátttöku, en miðað við 11 umf (hámark 14)
Á laugardag og sunnudag verður síðan telfd atskák og gert ráð fyrir 9 umferðum, 5 á laugardag og 4 á sunnudag og taflmennska hefjist kl. 11.00 báða dagana og matarhlé verði eftir 2 umferðir. Tímamörk verða 15+10. Verðlaun fyrir 1. sæti verða 55.000, 2. sæti 40.000, 3. sæti 25.000, efsti undir 1800 stigum 15.000 og 15.000 fyrir fyrsta sæti í hraðskákmótinu.
Verðlaunafé verður skipt eftir Hort-kerfi verði keppendur jafnir að vinningum. Aðeins þrír efstu keppendur eftir oddastigaútreikning fá verðlaun. Lokaröð keppenda ræðst af oddastigum (tiebreaks). 1. Fleiri tefldar skákir 2. Buchholz (-1) 3. Buchholz 4. Innbyrðis úrslit 5. Sonneborn-Berger 6. Oftar svart
Skráning í gula kassanum á skak.is og hjá jhaym@simnet.is og 8653827

















