Í dag lýkur yfirförinni yfir Ólympíufaranum með Gunnar Björnssyni sem fer yfir svörin.
Nafn og hlutverk
Gunnar Björnson. Hef alls konar hlutverk. Dindill, sinni fréttamennsku, aðstoða við praktísk atriði og vera til staðar eins og ég get.
Gukesh eða Sindarov?
Það er nokkuð ljóst að langflestir hafa mun meiri trú á Sindarov. Sjálfur held ég bara að þetta sé 50-50. Gukesh verður sterkari en menn gera ráð fyrir.
Félag?
Ég stofnaði Helli árið 1991 og hef ekki skipt um félag síðan.
Kaffi eða te? Og ef kaffi – drekkur þú jafn mikla mjólk með kaffinu og Helgi Ólafsson?
Svart kaffi – stundum te á kvöldin. Nei ég drekk ekki jafn mikla mjólk og Helgi – og ég held að fáir geri það!
Hvernig er þínum undirbúningi (skáklegum, andlegum og líkamlegum) háttað fyrir Ólympíumótið nú?
Tölverður undirbúningur fyrir Ólympíuskákmót á skrifstofu SÍ. Alls konar skriffinnska, flugmiðapantantir og fjáröflun. Enda veitir ekki af því þegar því er haldið fram í ónefndum útvarpsþætti að kostnaðurinn við Ól sé 15.000.000 kr. Reyndar segir fjárhagsáæltun SÍ þrefalt minna. Svo hefur farið smá tími í ræða og hitta frambjóðendur til forsetaembættis FIDE.
Hvað lið verður í öðru sæti í ensku úrvalsdeildinni á eftir Arsenal?
Óskhyggjan segir Liverpool en raunsæin Man City.
Bókin á náttborðinu?
Skömm frá því að segja er ég nánast hættur að lesa bækur og tímarit á prentuðu formi.
Hversu oft hefur þú farið á Ólympíuskákmót?
Fór 2006, 2010, 2012, 2014, 2016, 2018, 2022 og 2024. Svo þetta er með níunda ólympíuskákmótið.
Hvað er það fyrsta sem þú setur í ferðatöskuna?
Hleðslutæki fyrir tölvu og síma og hleðslubanka.
Hvað er það síðasta sem þú horfðir á Netflix (eða annarri sjónvarpsveitu)?
Hef verið að horfa Homeland og Person of interest. Stórgott efni hvorug tveggja
Hversu leiðinleg er rapptónlist?
Mjög með örfáum undantekningum
Þinn uppáhalds taflmaður og af hverju?
Mikail Tal og Friðrik Ólafsson. Tefldu svo skemmtilega
Hver var besti árangur Úsbeka á Ólympíuskákmóti áður en þeir unnu gullið árið 2022?
Það voru örfáir sem hefðu þetta rétt. Á sínu fyrsta Ólympíuskákmót 1992 sem sjálfstæð þjóð náðu þeir silfri. Árangur sem kom gríðarlega á óvart. Það kom mér þó mest að óvart að Helgi Ólafsson sem man allt betur en allir hafði þetta ekki þetta rétt.
Úsbekistan og Liechtenstein eru einu löndin sem eiga eitt sameiginlegt. Getur þú ímyndað þér hvað það er?
Nokkrir höfðu margir þetta líka rétt. Einu löndin sem eru tvöfalt landlukt.
Hverja telur þú líklegasta til sigurs á Ólympíuskákmótinu í opnum og kvennaflokki?
Spái Indlandi í opnum flokki en Kasakstan í kvennaflokki.
Buettner, Rosenstein eða Turlov?
Tel yfirgnæfandi líkur að Timor Turlov verði áttundi forseti FIDE og Vishy Anand áfram varaforseti.
Uppáhaldsskák?
Mín uppáhaldsskák var sigurskák mín gegn Jóni L. Árnasyni 5. október 2008 þegar ég var mjög glær og svefnlítill eftir fimmtudagsafmælisveislu. Hitti á skák lífs míns. Degi síðar bað Geir H. Haarde að blessa Ísland.
Hafa Úsbekar átt heimsmeistara í skák?
Þetta vissu fleiri en ég hélt. Rustam Kasimdzhanov var heimsmeistari FIDE 2004-05.
Hvað er skemmtilegasta/erfiðasta við 11 umferðir á Ólympíuskákmóti?
Fyrir mér er þetta algjör veisla. Hitta fullt af skemmtilegu fólki og fylgjast með frábæru skákmóti. Mikil spenna í loftinu í kringum kosningar. Áreitið getur verið mikið og þreytandi – ekki síst í kringum kosningar.
Helsta fyrirmynd í lífinu og/eða skák?
Foreldrar mínir. Kenndu mér að vera jákvæður og horfa fram á veginn.
Þitt markmið á mótinu?
Standa mig vel, standa með sjálfum mér, vera forseta SÍ og landsliðsliðunum innanhandar og gæta að hagsmunum Skáksambands Íslands.
Að lokum?
Áfram við!
Ólympíufararnir
Opinn flokkur
- GM Vignir Vatnar Stefánsson
- IM Hilmir Freyr Heimisson
- GM Jóhann Hjartarson
- GM Hannes Hlífar Stefánsson
- GM Guðmundur Kjartansson
- GM/FST Helgi Ólafsson (liðsstjóri)
Kvennaflokkur
- WGM Lenka Ptácníková
- WFM Hallgerður Helga Þorsteinsdóttir
- WFM Guðrún Fanney Briem
- WCM Iðunn Helgadóttir
- Hrund Hauksdóttir
- FM/FT Ingvar Þór Jóhannesson (liðsstjóri)
Aðrir
- Jóhanna Björg Jóhannsdóttir, forseti SÍ
- IA Jón Úlfur Hafþórsson, skákstjóri
- Gunnar Björnsson, dindill
















