Við höldum áfram með Ólympíufarann fyrir Ólympíuskákmótið sem hefst 16. september í Samarkand í Úsbekistan. Að þessu sinni kynnum við til leiks fyrsta borð Íslands, stórmeistarann Vigni Vatnar Stefánsson. Ritstjóri kemur með „rétt svör“ í loka ólympíufaranum fyrir fyrstu umferð.

Nafn og hlutverk

Vignir Vatnar Stefánsson, 1. borð.

Gukesh eða Sindarov?

Sindarov er miklu alhliðari skákmaður en Gukesh og mikið betri á klukkunni. Sindarov vinnur þetta and it won’t be close.

Félag?

Breiðablik.

Kaffi eða te? Og ef kaffi – drekkur þú jafn mikla mjólk með kaffinu og Helgi Ólafsson?

Kaffi og hafa það svart.

Hvernig er þínum undirbúningi (skáklegum, andlegum og líkamlegum) háttað fyrir Ólympíumótið nú?

Lyfta lóðum og stúdera skák.

Hvað lið verður í öðru sæti í ensku úrvalsdeildinni á eftir Arsenal?

Mínir menn í City í fyrsta sæti, alveg sama hver verður í öðru!

Bókin á náttborðinu?

Biblían og skákbækur eftir eða um Friðrik Ólafsson.

Hversu oft hefur þú farið á Ólympíuskákmót?

Þetta verður í annað skipti, en ég átti að fara líka 2022 – einhver dómsdagsveira kom í veg fyrir það.

Hvað er það fyrsta sem þú setur í ferðatöskuna?

Shilajit.

Hvað er það síðasta sem þú horfðir á Netflix (eða annarri sjónvarpsveitu)?

Horfi ekki á þætti eða myndir – eyðir allt of miklum tíma!

Hversu leiðinleg er rapptónlist?

Rapptónlistin er líklega það næstbesta sem hefur komið fyrir mannkynið.

Þinn uppáhalds taflmaður og af hverju?

Kóngurinn.

Hver var besti árangur Úsbeka á Ólympíuskákmóti áður en þeir unnu gullið árið 2022?

2. sæti 1992.

Úsbekistan og Liechtenstein eru einu löndin sem eiga eitt sameiginlegt. Getur þú ímyndað þér hvað það er?

Double landlocked.

Hverja telur þú líklegasta til sigurs á Ólympíuskákmótinu í opnum og kvennaflokki?

Bandaríkin, og kvenna megin sennilega Indverjar.

Buettner, Rosenstein eða Turlov?

Turlov.

Uppáhaldsskák?

Að sjálfsögðu skák með sjálfum mér. Skák mín gegn Maxim Rodshtein sem tryggði mér sæti á heimsbikarmótinu eftir 20 leikja undirbúning frá Birki Ísak!

Hafa Úsbekar átt heimsmeistara í skák?

Já, Rustam Kasmadjonov þarna.

Hvað er skemmtilegasta/erfiðasta við 11 umferðir á Ólympíuskákmóti?

Skemmtilegast að tefla við ótrúlega sterka skákmenn, leiðinlegast hvað þetta er strembið!

Helsta fyrirmynd í lífinu og/eða skák?

Friðrik Ólafsson bæði í skák og lífinu, en síðan er Reynir Grétarsson helvíti flottur líka. Get mælt með fyrir alla að lesa sjálfsævisögu hans!

Þitt markmið á mótinu?

Vera traustur og sterkur fyrsta borðs maður.

Að lokum?

Vona að fá eins mikið af fílum frá Birki Ísak og hægt er!

Ólympíufararnir

Opinn flokkur

  1. GM Vignir Vatnar Stefánsson
  2. IM Hilmir Freyr Heimisson
  3. GM Jóhann Hjartarson
  4. GM Hannes Hlífar Stefánsson
  5. GM Guðmundur Kjartansson
  6. GM/FST Helgi Ólafsson (liðsstjóri)

Kvennaflokkur

  1. WGM Lenka Ptácníková
  2. WFM Hallgerður Helga Þorsteinsdóttir
  3. WFM Guðrún Fanney Briem
  4. WCM Iðunn Helgadóttir
  5. Hrund Hauksdóttir
  6. FM/FT Ingvar Þór Jóhannesson (liðsstjóri)

Aðrir

- Auglýsing -