Stórmeistarinn Vignir Vatnar Stefánsson bar sigur úr býtum á Borgarskákmótinu 2026 sem fram fór í Ráðhúsi Reykjavíkur fimmtudaginn 20. ágúst. Alls tóku 58 skákmenn þátt í mótinu, sem var nú haldið í 41. sinn.

Borgarskákmótið er samstarfsverkefni Reykjavíkurborgar og Taflfélags Reykjavíkur og hefur um árabil skipað fastan sess í skáklífi borgarinnar. Tefldar voru sjö umferðir í hraðskák með umhugsunartímanum fjórar mínútur auk tveggja sekúndna á hvern leik.

Vignir Vatnar, sem var stigahæsti keppandi mótsins, fékk 6 vinninga af 7 mögulegum. Jafn honum að vinningum varð alþjóðlegi meistarinn Björn Þorfinnsson með sigri á Vigni í loka umferðinni. Vignir varð ofar á oddastigum og tryggði sér sigurinn.

Baráttan um efstu sætin var hörð. Oliver Jóhannesson varð þriðji með 5½ vinning, Tómas Björnsson fjórði, einnig með 5½ vinning, og Gunnar Björnsson náði frábærum árangri og varð fimmti með 5½ vinning.

Efstu fimm:

  1. Vignir Vatnar Stefánsson – 6
  2. Björn Þorfinnsson – 6
  3. Oliver Jóhannesson – 5½
  4. Tómas Björnsson – 5½
  5. Gunnar Björnsson – 5½

Fjölmargir ungir skákmenn stóðu sig einnig vel. Birkir Hallmundarson vakti meðal annars athygli með 4 vinninga og frammistöðu upp á 2013 stig, en hann var skráður með 1890 stig fyrir mótið. Katrín Ósk Tómasdóttir fékk sömuleiðis 4 vinninga, varð í 24. sæti og tefldi upp á 1793 stig þrátt fyrir að vera skráð með 1663 stig.

Hallgerður Þorsteinsdóttir varð efst kvenna með 4½ vinning og hafnaði í 14. sæti í heildarkeppninni. Iðunn Helgadóttir fékk 4 vinninga og varð í 20. sæti.

Heildarúrslit Borgarskákmótsins 2026 á Chess-Results

Ljósmyndir frá mótinu má sjá á ljósmyndasíðu Skáksambands Íslands

- Auglýsing -