Þátttökurétt hafa allir þeir sem hafa minna en 2000 Elo-stig, þ.e. allt frá 0 að 1999 skákstigum.
Tefldar eru sjö umferðir eftir svissneska kerfinu.
Leyfðar eru tvær yfirsetur í umferðum 1-5 sem skal tilkynna skákstjóra fyrir lok umferðarinnar á undan en 1/2 vinningur fæst fyrir yfirsetu.
Mótið verður reiknað til alþjóðlegra skákstiga.
Sjálfkrafa tap dæmist á keppanda sem mætir á skákstað meira en 30 mínútum eftir upphaf umferðar.
Fyrirkomulag:
Teflt er tvisvar í viku, á miðvikudagskvöldum kl. 18.30 og Sunnudögum kl: 13:00, í Skákhöll félagsins að Faxafeni 12.
Hlé 11. október vegna Íslandsmóts skákfélaga.
Dagskrá:
- umferð: miðvikudagur 30. september kl. 18.30
- umferð: sunnudagur 4. október kl. 13.00
- umferð: miðvikudagur 7. október kl. 18.30
- umferð: miðvikudagur 14. október kl.18.30
- umferð: sunnudagur 18. október kl. 13.00
- umferð: miðvikudagur 21. október kl. 18.30
- umferð: sunnudagur 25. október kl. 13.00
Tímamörk: 90 mín á alla skákina + 30 sek viðbót eftir hvern leik. 15 mínútur bætast við eftir 40 leiki.
Verðlaun: 1. sæti kr. 40.000, 2. sæti kr. 25.000, 3. sæti kr. 15.000. Verðlaun skiptast eftir Hort-kerfi.
Röð mótsstiga (tiebreaks): 1. Buchholz (-1) 2. Buchholz 3. Innbyrðis viðureign 4. Fleiri sigrar
Þátttökugjöld: 18 ára og eldri kr. 6.200, 17 ára og yngri kr. 3.300
Fyrirspurnir skulu sendast á: taflfelag@taflfelag.is
Abler skráningarform:


















