Þriðja umferð Ólympíuskákmótsins í Samarkand fór fram í gær. Íslenska liðið tapaði naumt gegn Tékkum 1,5-2,5 í hörkuviðureign en í kvennaflokki vannst auðveldur 4-0 sigur gegn Timor-Lestel

Opinn flokkur: Tékkland – Ísland

Ísland var með fullt hús eftir tvær umferðir og mætti Tékklandi sem er 20. sterkasta liðið og stigahærra á öllum borðum. Guðmundur Kjartansson kom inn á 4. borð.

Borð Tékkland stig Ísland stig
1 GM Thai Dai Van Nguyen 2633 GM Vignir Vatnar Stefánsson 2531
2 GM David Navara 2606 IM Hilmir Freyr Heimisson 2342
3 GM Václav Fínek 2578 GM Jóhann Hjartarson 2461
4 IM Jáchym Němec 2483 GM Guðmundur Kjartansson 2402
Hilmir – Navara
Hilmir fékk nokkurn veginn upp það sem hann vildi. Staðan eftir 12.Rd5 var á eldhúsborðinu í undirbúniningi. Jafnteflið nokkuð öruggt en vantaði smá krydd í stöðuna til að geta pressað upp á meira.
Guðmundur-Nemec
Byrjunin heppnaðist ekki nógu vel hjá Gumma og fór mikill tími í skákina. Í tímahraki í 30. leik kom slakur leikur en þá var hvíta staðan í góðu lagi, 30.Ha5!? hefði gefið svörtum ákveðin vandamál að leysa.
Nguyen – Vignir
Vignir skilaði sínu á 1. borði, hélt jafntefli nokkuð auðveldlega og virtist aldrei í mikilli hættu og mögulega með betri færi á köflum.
Finek-Jóhann
Jóhann hélt áfram góðri taflmennsku gegn Finek. Í miðtaflinu fékk Jóhann betra með svörtu en sá tékkneski náði að standast pressuna.
Svekkjandi tap með minnsta mun.
Mótherjar 4. umferðar eru Dómíníska lýðveldið sem var lagt að velli örugglega fyrir 4 árum.
Kvennaflokkur: Tímor-Leste – Ísland

Kvennaliðið mætti Tímor-Lesta og hvíldi Iðunn.

Borð Tímor-Leste stig Ísland stig
1 Maria Soares de Araujo 1724 WGM Lenka Ptácníková 2082
2 Sonizia A. Tilman da Silva 1675 WFM

Hallgerður Helga Þorsteinsdóttir

1995
3 Elfiana dos Santos 1674 WFM Guðrún Fanney Briem 1865
4 Embelina Agusta Soares 1587 Hrund Hauksdóttir 1817
Elóstig Tímor kvenna reyndust að mörgu leiti tálsýn. Miðað við fyrri skákir mátti búast við lítilli mótspyrnu og reyndist það raunin. Öll borð voru komin með meira og minna unnið tafl eftir 10-15 leiki.

Næsta verkefni er Ástralía sem er verðugt verkefni!

Ólympíu-tenglar!

- Auglýsing -