Ellefta og síðasta umferð Ólympíuskákmótsins í Samarkand hefst kl. 6 að íslenskum tíma Andstæðingar dagsins eru Albanía í opnum flokki og Litháen í kvennaflokki. Hannes Hlífar og Hallgerður Helga hvíla.

Liðið í opnum flokki steinlá fyrir Danmörku ½–3½ í gær. Vignir, Hilmir og Guðmundur töpuðu en Jóhann gerði jafntefli. Liðið er með 12 liðsstig og 24 borðstig og er í 48. sæti.

Kvennaliðið gerði 2–2 jafntefli við Írland. Iðunn og Hrund unnu, Lenka og Hallgerður töpuðu. Liðið er með 11 liðsstig.

Opinn flokkur: Ísland – Albanía

Borð Ísland stig Albanía stig
1 GM Vignir Vatnar Stefánsson 2531 IM Franc Ashiku 2388
2 IM Hilmir Freyr Heimisson 2342 IM Dritan Mehmeti 2312
3 GM Jóhann Hjartarson 2461 FM Mateu Boci 2317
4 GM Guðmundur Kjartansson 2402 FM Aleksander Xhembulla 2292

Vignir er með 6½ af 10 og fær svart. Hilmir fær hvítt, Jóhann svart og Guðmundur, sem er með 5 af 7, hvítt á fjórða borði.

Kvennaflokkur: Ísland – Litháen

Borð Ísland stig Litháen stig
1 WGM Lenka Ptácníková 2082 WGM Salomėja Zaksaitė 2101
2 WFM Guðrún Fanney Briem 1865 WIM Simona Limontaitė 2130
3 WCM Iðunn Helgadóttir 1869 Agnė Mickūnaitė 1977
4 Hrund Hauksdóttir 1817 WFM Marija Sibajeva 1985
Guðrún er með 6 af 9. Iðunn er með 5 af 8, Hrund 4½ af 5.

Toppbaráttan

Opinn flokkur. Úsbekistan er í forystu með 18 liðsstig og 9 sigra af 10. Indland hefur 17 stig. Þýskaland, Úkraína og Ungverjaland hafa 16. Í lokaumferðinni mætir Úsbekistan Úkraínu, Indland teflir við Ungverjaland.

Kvennaflokkur. Kína er í forystu með 18, Kasakstan 17. Indland, Pólland og Víetnam hafa 16. Kína mætir Víetnam, Pólland teflir við Kasakstanog Indland við Georgíu.

Nona Gaprindashvili-bikarinn fer til þess sambands sem stendur sig best samanlagt í opnum flokki og kvennaflokki.

Staða Íslands í flokkum

Liðin eru flokkuð eftir upphafssæti. Opna liðið (sæti 48) er í B-flokki, kvennaliðið (sæti 80) í C-flokki. Þar eru sérstök flokksverðlaun.

Eftir tíu umferðir er opna liðið í 12. sæti í B-flokki, með 12 liðsstig og 24 borðstig. Víetnam og Mongólía leiða flokkinn með 14.

Kvennaliðið er í 2. sæti í C-flokki, á eftir Srí Lanka (14). Ísland er með 11 liðsstig og 25 borðstig, jafnt Panamó, Albaníu og fleirum á 11, en með bestu aukastigin á eftir Srí Lanka. Góð úrslit gegn Litháen myndi að öllum líkindum tryggja verðlaun

Vefsíður til að fylgjast með

- Auglýsing -