Úrslitakeppni Íslandsmóts Símans í netskák 2026 heldur áfram á sunnudaginn 4. október með síðustu tveimur viðureignunum í 16 manna úrslitum. Taflmennska hefst kl. 15:00. Beinar útsendingar verða á Símanum Sport og einnig er hægt að fylgjast með á YouTube- og Twitch-rásum RÍSÍ.
Stórmeistarinn Helgi Áss Grétarsson og FIDE-meistarinn Birkir Ísak Jóhannsson sjá um skákskýringar sunnudagsins.
Fyrri viðureign dagsins er á milli FIDE-meistarana Ingvars Þór Jóhannessonar og Sigurbjörns Björnssonar. Að henni lokinni mætast stórmeistarinn Vignir Vatnar Stefánsson og alþjóðlegi meistarinn Dagur Ragnarsson. Tefldar verða sex skákir. Sá sem fyrr nær 3½ vinningi vinnur; verði jafnt, 3-3, er teflt til þrautar.
Úrslit síðustu helgar
Á sunnudaginn 27. september komust alþjóðlegi meistarinn Aleksandr Domalchuk-Jonasson og áðunefndur Helgi Áss Grétarsson í átta manna úrslit. Aleksandr vann FIDE-meistarann Bárð Örn Birkisson 3,5–1,5 og Helgi Áss lagði alþjóðlega meistarann Björn Þorfinnsson (Bylgju-Bjössa) örugglega að velli 3,5–0,5.
Þar með eru 16 manna úrslit sem hér segir:
-
- september: WGM Lenka Ptácníková – GM Jóhann Hjartarson (frestað)
-
- september: IM Hilmir Freyr Heimisson – FM Símon Þórhallsson 4–0
-
- september: FM Jón Kristinn Þorgeirsson – FM Róbert Lagerman 3,5–0,5
-
- september: GM Bragi Þorfinnsson – FM Oliver Aron Jóhannesson 3,5–2,5
-
- september: IM Aleksandr Domalchuk-Jonasson – FM Bárður Örn Birkisson 3,5–1,5
-
- september: IM Björn Þorfinnsson – GM Helgi Áss Grétarsson 0,5–3,5
-
- október: FM Ingvar Þór Jóhannesson – FM Sigurbjörn Björnsson
-
- október: GM Vignir Vatnar Stefánsson – IM Dagur Ragnarsson
Mótið er skipulagt af Rafíþróttasambandi Íslands í samstarfi við Skáksamband Íslands og Sjónvarp Símans.
Átta manna úrslit hefjast 25. október. Undanúrslit eru 8. nóvember og úrslit 15. nóvember.
Verðlaunafé mótsins er 125.000 kr. fyrir fyrsta sæti, 75.000 kr. fyrir annað sæti og 25.000 kr. fyrir þriðja og fjórða sæti.
















