Benedikt Þórisson tryggði sér í dag sigur á Meistaramóti Skákskóla Íslands og um leið titlana Meistari Skákskóla Íslands og Ungmennameistari Íslands U22.
Þetta er í fyrsta sinn sem Benedikt vinnur báða þessa titla.
Benedikt vann snarpan sigur í úrslitaskákinni gegn Markúsi Orra Óskarssyni.

Auk titlanna hlýtur Benedikt 50.000 kr. ferðastyrk á skákmót erlendis og keppnisrétt í Meistaraflokki Skákþings Íslands á næsta ári.
Markús Orri Óskarsson endaði í 2. sæti með 4 vinninga og fékk 30.000 kr. ferðastyrk að launum. Óskar Víkingur Davíðsson fékk einnig 4 vinninga, en varð lægri eftir stigaútreikning. Hann fékk 15.000 kr. inneign hjá Chessable.

Iðunn Helgadóttir fékk einnig 4 vinninga en var lægst þeirra þriggja eftir stigaútreikning. Iðunn fékk þó verðlaun fyrir góðan árangur miðað við eigin skákstig.

Pétur Úlfar Ernisson fékk einnig verðlaun fyrir góðan árangur miðað við eigin skákstig og góða stigahækkun (+37).

Lokastaðan efstu keppenda:
1. Benedikt Þórisson 5 v.
2. Markús Orri Óskarsson 4 v.
3. Óskar Víkingur Davíðsson 4 v.
4. Iðunn Helgadóttir 4 v.

Skákstjóri á mótinu var Björn Ívar Karlsson skólastjóri Skákskóla Íslands.
Myndir: Tómas Tandri Jóhannsson
Dagskrá:
1.-3. umferð kl. 17:00-19:15 föstudaginn 2. október (atskákir, 15+5)
4. umferð kl. 11:00 laugardaginn 3. október (kappskák, 90+30)
5. umferð kl. 17:00 laugardaginn 3. október (kappskák, 90+30)
6. umferð kl. 11:00 sunnudaginn 4. október (kappskák, 90+30)
- Mótið á chess-results
- Beinar útsendingar (15-mín seinkun)


















