Eitt af skemmtilegustu skámótum ársins var haldið fimmtudaginn 15 október, en þá var Alþjóða geðheilbrigðis skákmótið haldið með pomp og prakt. 22 skákmenn mættu til leiks og var hart barist.
Vinaskákfélagið hélt þetta mót lengi vel ì samvinnu við Taflfélag Helli, en síðari árin í samvinnu við Taflfélag Reykjavíkur.
Er þetta líklega 20 árið sem þetta mót er haldið.
Alþjóðlega Geðheilbrigðis skákmótið er haldið í tilefni þess að 10 október ár hvert er haldin Alþjóðlegi Geðheilbrigðis dagurinn.
Yfirdómari var Róbert Lagerman, en skákstjóri var Magnús Kristinsson frá TR og skipuleggjandi var Hörður Jónasson.
Tefldar voru 9 umferðir með tímamörkunum 4 mín. + 2 sek.
Á meðan teflt var og gátu menn fengið sér kaffi og meðlæti.
Hörður Jónasson forseti Vinaskákfélagsins hélt smá ræðu í upphafi tafls.
Sigurvegari var Sverrir Örn Björnsson en hann fékk 8 vinninga af 9 möguleikum.
Eftirfarandi skákmenn fengu verðlaun:
- Sæti: Sverrir Örn Björnsson
- Sæti: Pavlo Honcharov
- Sæti: Róbert Lagerman
Hér er svo mynd af 3 efstu.

50 ára og eldri: Kristján Th Sverrisson

16 ára og yngri: Anh Hai Tran

Kvennaverðlaun: Lenka Ptacnikova

Aukaverðlaun fékk svo Aðalsteinn Thorarensen.

Öll úrslit er hægt að sjá hér: Alþjóðlega geðheilbrigðisskákmótið 2026
Stjórn Vinaskákfélagsins vill svo þakka öllum sem tóku þátt bæði skákstjóra og keppendum.
Kveðja, Hörður Jónasson forseti Vinaskákfélagsins.
















