Skákþing Goðans 2026 fer fram laugardaginn 14 nóvember í Túni á Húsavík. Mótið verður að þessu sinni atskákmót og teflt á einum degi. Tímamörk verða 15+3 og allt að 7 umferðir verða tefldar. Umferða fjöldinn fer þó eftir fjölda keppenda. Mótið hefst kl 10:30. Áætluð mótslok eru um kl 16:00
Hefðbundin verðlaun verða veitt handa þremur efstu og farndabikar og nafnbótina skákmeistari Goðans 2026 handa sigurvegarnum. Ókeypis er í mótið en aðeins félagsmenn Goðans geta unnið til verðlauna.
Skráning í mótið er hafin og fer fram hér.
Mótið er nú haldið í 23 skiptið og hefur Rúnar Ísleifsson oftast unnið það, eða sex sinnum alls. Smári Sigurðsson hefur unnið mótið fimm sinnum og núverandi skákmeistari Goðans, Jakob Sævar Sigurðsson, hefur unnið mótið fjórum sinnum. Átta skákmenn hafa hampað titilinum einu sinni eða oftar í gegnum tíðina.
Meistaramót Goðans – Skákþing
2004 Baldur Daníelsson
2005 Ármann Olgeirsson
2006 Ármann Olgeirsson
2007 Smári Sigurðsson
2008 Smári Sigurðsson
2009 Benedikt Þorri Sigurjónsson
2010 Rúnar Ísleifsson
2011 Jakob Sævar Sigurðsson
2012 Rúnar Ísleifsson
2013 Smári Sigurðsson
2014 Jakob Sævar Sigurðsson
2015 Rúnar Ísleifsson
2016 Sigurður Daníelsson
2017 Tómas Veigar Sigurðarson
2018 Tómas Veigar Sigurðarson
2019 Rúnar Ísleifsson
2020 Rúnar Ísleifsson
2021 Jakob Sævar Sigurðsson
2022 Smári Sigurðsson
2023 Rúnar Ísleifsson
2024 Smári Sigurðsson
2025 Jakob Sævar Sigurðsson
2026 ?















