Nú hafa tvö mót verið haldin í Meistaraflokkshraðskákmótum TR. Fyrsta fimmtudagsmót hvers mánaðar, frá september og út maí, eru fyrir skákmenn með yfir 1900 hraðskákstig.
Myndir frá mótinu þann 3. september.
Dagskráin:
Fimmtudagur 3. september: Mótið á chess results.
Fimmtudagur 1. október: Mótið á chess results.
Næsta mót á dagskrá: Fimmtudaginn 5. nóvember.
Veitt eru stig fyrir 10 efstu, 12 stig fyrir 1. sæti, 10. stig fyrir 2. sæti, 8 stig fyrir 3. sæti og svo 7 og niður í 1 stig fyrir næstu sæti. Bestu 6 mótin af 8 munu gilda.
Staðan eftir tvö mót:
| Stig 3.9 | Stig 1.10 | Samtals eftir 2 mót | |
| Anh Hai Tran | 2 | 2 | |
| Arnar Milutin | 3 | 3 | |
| Bárður Örn | 10 | 8 | 18 |
| Björn Hólm | 6 | 12 | 18 |
| Bragi Þorfinnsson | 7 | 7 | |
| Dagur Ragnarsson | 8 | 10 | 18 |
| Gauti Páll | 1 | 1 | |
| Halldór Brynjar | 5 | 5 | |
| Haukur Víðis | 3 | 3 | |
| Jóhann Ragnarsson | 7 | 7 | |
| Magnús Pálmi | 2 | 2 | |
| Óskar Víkingur | 4 | 4 | |
| Páll Sigurðsson | 6 | 6 | |
| Pétur Úlfar | 4 | 4 | |
| Stefán Steingrímur | 5 | 5 | |
| Vignir Vatnar | 12 | 12 |
Nánari kynning á mótaröðinni:
Komandi skákvetur mun fyrsta fimmtudagsmót hvers mánaðar hjá Taflfélagi Reykjavíkur verða með stigalágmarki upp á 1900 hraðskákstig. Allir skákmenn yfir 1900 hraðskákstig geta tekið þátt. Mótin hefjast stundvíslega klukkan 19:30 og teflt er í sal Taflfélags Reykjavíkur, Faxafeni 12.
Hefðbundnu fimmtudagsmótin sem eru opin öllum eru áfram á sinni dagskrá nema fyrsta hvers mánaðar þegar stigalágmarkið gildir. Efstu þrír keppendur á hverju hefðbundnu fimmtudagsmóti öðlast þátttökurétt á yfirstandandi meistaraflokksmótaröð sem lýkur í maí. Þannig geta skákmenn undir 1900 stigum unnið sér inn rétt til þátttöku í mótaröðinni.
Fimmtudagsmótin með stigalágmarki munu bera heitið „Meistaraflokksmót“.
Meistaraflokksmót vetrarins frá september til og með maí mynda samana Meistaraflokksmótaröðina þar sem keppendur vinna sér inn stig á hverju móti. Sex bestu mót hvers keppenda gilda.
Fyrir mótaröðina eru verðlaunin:
1. 80.000 kr.
2. 50.000 kr.
3. 20.000 kr.
Með Meistaraflokksmótunum er markmiðið m.a. að gefa sterkustu ungu félagsmönnum Taflfélagsins tækifæri á fleiri hraðskákum við sterka menn en þeir fá á opnu félagsmótunum. Jafnframt myndast fleiri tækifæri fyrir sterkari skákmenn landsins til að tefla saman.
Þátttökugjöld í Meistaraflokksmót eru 1000 krónur og gilda um allar keppendur, utan stórmeistara sem fá ókeypis þátttöku.
1. 80.000 kr.
2. 50.000 kr.
3. 20.000 kr.
Með Meistaraflokksmótunum er markmiðið m.a. að gefa sterkustu ungu félagsmönnum Taflfélagsins tækifæri á fleiri hraðskákum við sterka menn en þeir fá á opnu félagsmótunum. Jafnframt myndast fleiri tækifæri fyrir sterkari skákmenn landsins til að tefla saman.
Þátttökugjöld í Meistaraflokksmót eru 1000 krónur og gilda um allar keppendur, utan stórmeistara sem fá ókeypis þátttöku.
















