Stuart Conquest

Breski stórmeistarinn Stuart Conquest (2495) hefur bæst við sístækkandi hóp skákmanna sem taka þátt í Sel Hótel Mývatn/Mývatn Öl open skákmótinu sem fram fer í Skjólbrekku 19-22 nóvember nk. Stuart er þriðji stigahæsti skákmaður mótsins rétt á eftir Ivan Schitco og Vigni Vatnari Stefánssyni og rétt ofan við Simon Willimas stigalega séð.

Nú eru 35 skákmenn skráðir til leiks á mótinu og ljóst er að mótið verður bæði talsvert mikið sterkara og fjömennara en afmælismót Goðans sem fram fór í Skjólbrekki í mars árið 2025. Annað sem vekur sérstaka athygli er að 17 af 35 keppendum á mótinu eru titilhafar af einhverju tagi.

Einnig er mjög gleðilegt að sjá að mótið verður sannarlega alþjóðlegt þar sem keppendur koma frá fjórum þjóðlöndum auk Íslands, koma á mótið. Tveir skákmenn koma frá Englandi og einn frá Moldóvu, Búlgaríu og Írlandi.

Skráning í mótið verður opin fram til hádegis 19. nóvember, en skráning í rútuna lokar á hádegi þann 18. nóv.

Vefur mótsins

Chess-results

- Auglýsing - Skákskóli Íslands – upplýsingar um haustönn