Heimsmeistaramót öldunga í skák hófst í dag í Vrnjačka Banja í Serbíu. Mótið stendur til 14. nóvember og er teflt er í fjórum flokkum. Tæplega 400 keppendur taka þátt og þar af fjórir Íslendingar. Tveir í 50+ flokknum og tvær í 65+ flokki kvenna. Stórmeistarinn Hannes Hlífar Stefánsson byrjaði á sigri í 50+ flokknum.

Opinn flokkur 50+ (124 keppendur)

Hannes hóf keppni í flokknum með sigri. Hann hafði svart gegn spænskum FIDE-meistara og fékk snemma þægilegt miðtafl með pressu á drottningarvæng. Skákin leitaði eftir það nánast að öllu leiti til Hannesar að undanskildum einum tímapunkti þar sem hvítur hefði getað sett upp praktísk vandamál í hróksendataflinu. Spánverjanum tókst það ekki og Hannes innbyrti nokkuð þægilegan sigur.

Henrik Danielsen gerði jafntefli í sinni skák. Skiptust á skin og skúrir í skákinni. Sá enski hafði lengst af betra með svörtu og missti af vænlegri leið snemma í miðtaflinu að taka á c5 en á móti missti Henrik af þráðbeinum sigri í lokin með De1 sem valdar borðið og næst kemur Bg4.

Í 2. umferð hefur Hannes hvítt gegn hollenskum skákmanni en Henrik svart gegn andstæðingi frá Kuwait!

  • GM Henrik Danielsen – er sá fimmti sigahæsti með 2472 skákstig
  • GM Hannes Hlífar Stefánsson – er sá tíundi stigahæsti með 2401 skákstig.

Meðal annarra keppenda eru GM Murtas Kazhgaleyev (KAZ, 2532), GM Kiril Georgiev (BUL, 2512), GM Jean-Marc Degraeve (FRA, 2485) og GM Michele Godena (ITA, 2447).

Konur 65+ (29 keppendur)

Guðlaug lagði Neumynu frá Rússlandi en Sigurlaug tapaði gegn WFM Baliuniene frá Litháen. Þær hafa báðar svart á morgun, Guðlaug fær aftur rússneskan andstæðing, nú með 2155 en Sigurlaug mætir þýskum WFM.

  • WFM Guðlaug Þorsteinsdóttir – 13. stigahæst með 1994 skákstig
  • Sigurlaug Regina Friðþjófsdóttir – 26. stigahæst með 1713 skákstig.

Í þessum flokki er goðsögnin GM Nona Gaprindashvili (GEO, 2168) stigahæst. Nona er auðvitað fyrrverandi heimsmeistari kvenna og var meðal keppenda á fyrsta Reykjavíkurskákmótinu 1964! Þess má geta að meðal keppenda í 50+ er sjálf GM Pia Cramling!

Tenglasafn

- Auglýsing - Skákskóli Íslands – upplýsingar um haustönn