Evrópumót ungmenna í skák hófst í dag á eyjunni Krít. Þrettán íslensk ungmenni taka þátt í mótinu.

Uppskera íslenska hópsins var heldur rýr á fyrsta keppnisdegi. Nökkvi Már, Pétur Úlfar og Guðrún Fanney unnu sínar skákir, Eiður gerði jafntefli en aðrir töpuðu. Vissulega var meirihluti hópsins að tefla talsvert upp fyrir sig í fyrstu umferð en engu að síður gerðu sumir sig seka um fljótfærni sem var algjör óþarfi. Ágætis áminning um að það er nauðsynlegt að tefla mjög vel til þess að ná í úrslit á svona stórum og hörðum ungmennamótum.

Nökkvi Már (1553) átti skák umferðinnar gegn Francois Charrier (1939) en skákin fór vel yfir 100 leiki og lauk með því að Nökkvi Már mátaði andstæðing sinn með biskup og riddara!

Úrslit 1. umferðar
Pétur Úlfar og Nökkvi már sjást lengst til hægri á myndinni

Aðstæður á mótinu eru með besta móti. Vel fer um hópinn á stóru og veglegu hótelsvæði rétt við ströndina. Teflt er í sjö keppnissölum og raðað í þá eftir aldursflokkum. Engum er hleypt inn í salina nema keppendum svo myndin af Pétri og Nökkva hér að ofan kemur frá heimasíðu mótsins (Mark Livshitz).

2. umferð hefst á morgun kl. 13:00 að íslenskum tíma. Guðrún Fanney verður eini íslenski keppandinn í beinni.

Pörun 2. umferðar

Chess-results
Heimasíða mótsins
Beinar útsendingar

Mótið stendur yfir dagana 3.-12. nóvember. Tefldar verða níu umferðir með tímamörkunum 90+30.

U18
Markús Orri Óskarsson
Mikael Bjarki Heiðarsson

U16 stúlknaflokkur
Guðrún Fanney Briem

U14

Birkir Hallmundarson

U14 stúlknaflokkur
Harpa Hrafney Karlsdóttir

U12
Haukur Víðis Leósson
Pétur Úlfar Ernisson
Karma Halldórsson
Nökkvi Már Valsson

U10
Dagur Sverrisson
Eiður Jökulsson
Róbert Heiðar Skúlason

U8
Helgi Fannar Óðinsson

Þjálfarar íslenska hópsins eru Björn Ívar Karlsson og Ingvar Þór Jóhannesson.

Dagskrá mótsins (á íslenskum tíma):

Þriðjudagur
3. nóvember
13:00
Umferð 1
Miðvikudagur
4. nóvember
13:00
Umferð 2
Fimmtudagur
5. nóvember
13:00
Umferð 3
Föstudagur
6. nóvember
13:00
Umferð 4
Laugardagur
7. nóvember
13:00
Umferð 5
Sunnudagur
8. nóvember
Frídagur
Mánudagur
9. nóvember
13:00
Umferð 6
Þriðjudagur
10. nóvember
13:00
Umferð 7
Miðvikudagur
11. nóvember
13:00
Umferð 8
Fimmtudagur
12. nóvember
12:00
Umferð 9

 

- Auglýsing - Skákskóli Íslands – upplýsingar um haustönn