Faxafen 12
108 Reykjavík
Ísland

Stúlkna- og drengjameistaramót Taflfélags Reykjavíkur fer fram Sunnudaginn 22. nóvember
Mótið er telft í fjórum flokkum. Mótin eru opin öllum börnum og unglingum, óháð taflfélagi eða búsetu.
Þátttökugjöld eru kr.2000 (í alla flokka).
Skráning fer fram í gegnum Abler.
Boðið verður upp á þrjá yngri flokka fyrir hádegi sem byrja kl 10:00 og má reikna með að standi til kl.12 Keppendur staðfesti þátttöku á mótsstað eigi síðar en kl.9.45.
Krakkar sem eru gjaldgengir í yngri flokkana mega velja hvort þau tefla í aðalkeppninni eða í yngri flokkunum.
Yngri flokkur 1 (f.2017-2018)
Tefldar verða 5 umferðir eftir svissnesku kerfi með umhugsunartímanum 7 mínútur á skák, auk þess sem 3 sekúndur bætast við eftir hvern leik (7m+3s).
Mótstjórn áskilur sér leyfi til að bæta við umferð í Yngri flokk 1. ef keppandafjöldi fer yfir 32.
Mótið verður reiknað til alþjóðlegra hraðskákstiga.
Yngri flokkur 2 (f.2019)
Tefldar verða 5 umferðir eftir svissnesku kerfi með umhugsunartímanum 7 mínútur á skák, auk þess sem 3 sekúndur bætast við eftir hvern leik (7m+3s).
Yngri flokkur 3 (f.2020 og síðar)
Tefldar verða 5 umferðir eftir svissnesku kerfi með umhugsunartímanum 7 mínútur á skák, auk þess sem 3 sekúndur bætast við eftir hvern leik (7m+3s).
Opin flokkur:
Mótið er opið öllum börnum og unglingum, óháð taflfélagi eða búsetu, sem eru fædd árið 2011 eða síðar.
Aðalkeppnin fer fram í einum opnum flokki og þar verður keppt um sæmdarheitin Drengjameistari Taflfélags Reykjavíkur 2026 og Stúlknameistari Taflfélags Reykjavíkur 2026. Tefldar verða 7 umferðir eftir svissnesku kerfi með umhugsunartímanum 10 mínútur á skák, auk þess sem 5 sekúndur bætast við eftir hvern leik (10m+5s). Mótið verður reiknað til alþjóðlegra atskákstiga.
Aðalkeppnin hefst kl.13 og má reikna með að hún standi til kl.17 c.a. Keppendur staðfesti þátttöku á mótsstað eigi síðar en kl.12.45.
Verðlaun:
Verðlaun í yngri flokki 1:
Verðlaun verða veitt fyrir þrjú efstu sæti. Til viðbótar verða veitt verðlaun fyrir efstu stúlku og efsta dreng í báðum árgöngum (2017 og 2018).
Verðlaun í yngri flokk 2:
Verðlaun verða veitt fyrir þrjú efstu sæti. Til viðbótar verða veitt verðlaun fyrir efstu stúlku og efsta dreng.
Verðlaun í yngri flokk 3:
Verðlaun verða veitt fyrir þrjú efstu sæti. Til viðbótar verða veitt verðlaun fyrir efstu stúlku og efsta dreng í árganginum 2019 og 2020 og yngri.
Verðlaun í opna flokknum:
Verðlaun verða veitt fyrir þrjú efstu sætin. Til viðbótar verða veitt verðlaun fyrir efstu stúlku og efsta dreng í öllum árgöngum. Elsti árgangurinn er 2011 og yngsti árgangurinn er 2020 og yngri.
Nafnbótina Drengjameistari Taflfélags Reykjavíkur 2026 hlýtur sá drengur sem verður hlutskarpastur þeirra sem eru meðlimir í Taflfélagi Reykjavíkur. Nafnbótina Stúlknameistari Taflfélags Reykjavíkur 2026 hlýtur sú stúlka sem verður hlutskörpust þeirra stúlkna sem eru meðlimir í Taflfélagi Reykjavíkur.
Núverandi Drengja- og Stúlknameistarar Taflfélags Reykjavíkur eru Jósef Omarsson og Alexandra Voron Aðalsteinsdóttir.
Með þátttöku staðfesta keppendur að þeir leyfi myndatökur og birtingu mynda frá mótinu á skak.is, heimasíðu Taflfélagsins og á samfélagsmiðlum Taflfélags Reykjavíkur.
Veitingasala verður á staðnum.
Ef einhverjar spurningar vakna má senda fyrirspurn á taflfelag@taflfelag.is.
Þegar Skráðir Keppendur: (uppfært síðar)








