Stúlkna- og drengjameistaramót Taflfélags Reykjavíkur

    0
    2
    Hvenær:
    22. nóvember, 2026 @ 10:00 – 16:30
    2026-11-22T10:00:00-01:00
    2026-11-22T16:30:00-01:00
    Hvar:
    Taflfélag Reykjavíkur
    Faxafen 12
    108 Reykjavík
    Ísland
    Gjald:
    2000
    Tengiliður:
    Stúlkna- og drengjameistaramót Taflfélags Reykjavíkur @ Taflfélag Reykjavíkur | Reykjavík | Reykjavíkurborg | Ísland

    Stúlkna- og drengjameistaramót Taflfélags Reykjavíkur fer fram Sunnudaginn 22. nóvember

    Mótið er telft í fjórum flokkum. Mótin eru opin öllum börnum og unglingum, óháð taflfélagi eða búsetu.

    Þátttökugjöld eru kr.2000 (í alla flokka).

    Skráning fer fram í gegnum Abler.

    Skráningarform:

    Boðið verður upp á þrjá yngri flokka fyrir hádegi sem byrja kl 10:00 og má reikna með að standi til kl.12  Keppendur staðfesti þátttöku á mótsstað eigi síðar en kl.9.45.

    Krakkar sem eru gjaldgengir í yngri flokkana mega velja hvort þau tefla í aðalkeppninni eða í yngri flokkunum.

    Yngri flokkur 1 (f.2017-2018)

    Tefldar verða 5 umferðir eftir svissnesku kerfi með umhugsunartímanum 7 mínútur á skák, auk þess sem 3 sekúndur bætast við eftir hvern leik (7m+3s).

    Mótstjórn áskilur sér leyfi til að bæta við umferð í Yngri flokk 1. ef keppandafjöldi fer yfir 32.

    Mótið verður reiknað til alþjóðlegra hraðskákstiga.

    Yngri flokkur 2 (f.2019)

    Tefldar verða 5 umferðir eftir svissnesku kerfi með umhugsunartímanum 7 mínútur á skák, auk þess sem 3 sekúndur bætast við eftir hvern leik (7m+3s).

    Yngri flokkur 3 (f.2020 og síðar)

    Tefldar verða 5 umferðir eftir svissnesku kerfi með umhugsunartímanum 7 mínútur á skák, auk þess sem 3 sekúndur bætast við eftir hvern leik (7m+3s).

    Opin flokkur:

    Mótið er opið öllum börnum og unglingum, óháð taflfélagi eða búsetu, sem eru fædd árið 2011 eða síðar.

    Aðalkeppnin fer fram í einum opnum flokki og þar verður keppt um sæmdarheitin Drengjameistari Taflfélags Reykjavíkur 2026 og Stúlknameistari Taflfélags Reykjavíkur 2026. Tefldar verða 7 umferðir eftir svissnesku kerfi með umhugsunartímanum 10 mínútur á skák, auk þess sem 5 sekúndur bætast við eftir hvern leik (10m+5s).  Mótið verður reiknað til alþjóðlegra atskákstiga.

    Aðalkeppnin hefst kl.13 og má reikna með að hún standi til kl.17 c.a. Keppendur staðfesti þátttöku á mótsstað eigi síðar en kl.12.45.

    Verðlaun:

    Verðlaun í yngri flokki 1:

    Verðlaun verða veitt fyrir þrjú efstu sæti. Til viðbótar verða veitt verðlaun fyrir efstu stúlku og efsta dreng í báðum árgöngum (2017 og 2018).

    Verðlaun í yngri flokk 2:

    Verðlaun verða veitt fyrir þrjú efstu sæti. Til viðbótar verða veitt verðlaun fyrir efstu stúlku og efsta dreng.

    Verðlaun í yngri flokk 3:

    Verðlaun verða veitt fyrir þrjú efstu sæti. Til viðbótar verða veitt verðlaun fyrir efstu stúlku og efsta dreng í árganginum 2019 og 2020 og yngri.

    Verðlaun í opna flokknum:

    Verðlaun verða veitt fyrir þrjú efstu sætin. Til viðbótar verða veitt verðlaun fyrir efstu stúlku og efsta dreng í öllum árgöngum. Elsti árgangurinn er 2011 og yngsti árgangurinn er 2020 og yngri.

    Nafnbótina Drengjameistari Taflfélags Reykjavíkur 2026 hlýtur sá drengur sem verður hlutskarpastur þeirra sem eru meðlimir í Taflfélagi Reykjavíkur.  Nafnbótina Stúlknameistari Taflfélags Reykjavíkur 2026 hlýtur sú stúlka sem verður hlutskörpust þeirra stúlkna sem eru meðlimir í Taflfélagi Reykjavíkur.

    Núverandi Drengja- og Stúlknameistarar Taflfélags Reykjavíkur eru Jósef Omarsson og Alexandra Voron Aðalsteinsdóttir.

    Með þátttöku staðfesta keppendur að þeir leyfi myndatökur og birtingu mynda frá mótinu á skak.is, heimasíðu Taflfélagsins og á samfélagsmiðlum Taflfélags Reykjavíkur.

    Veitingasala verður á staðnum.

    Ef einhverjar spurningar vakna má senda fyrirspurn á taflfelag@taflfelag.is.

    Þegar Skráðir Keppendur: (uppfært síðar)

    - Auglýsing - Skákskóli Íslands – upplýsingar um haustönn