Stórmeistarinn Hannes Hlífar Stefánsson vann snaggaralegan sigur í aðeins 16 leikjum í 50+ flokknum á Heimsmeistaramót öldunga í skák í Vrnjačka Banja í Serbíu. Guðlaug Þorsteinsdóttir gerði gott jafntefli í 65+ flokki kvenna gegn einum af stigahæstu keppendum mótsins!
Opinn flokkur 50+ (124 keppendur)
Hannes hóf vann ótrúlega auðveldan sigur í dag gegn Hollendignum van Bersselaar. Sá hollenski veikti stöðu sína full mikið snemma eftir byrjunina og gerði taktískar aðgerðir Hannesar að nánast formsatriði fyrir skákmann eins góðan og Hannes er.
Henrik Danielsen gerði aftur jafntefli, nú gegn andstæðing frá Kuwait, róleg byrjun á mótinu hjá Henrik.
3. umferð verður tefld á morgun og þar hefur Hannes svart gegn Maxim Barth Stanford (2265), IM frá Noregi. Henrik mætir Makedónananum Robert Veleski (2111).
- GM Henrik Danielsen – er sá fimmti sigahæsti með 2472 skákstig
- GM Hannes Hlífar Stefánsson – er sá tíundi stigahæsti með 2401 skákstig.
Meðal annarra keppenda eru GM Murtas Kazhgaleyev (KAZ, 2532), GM Kiril Georgiev (BUL, 2512), GM Jean-Marc Degraeve (FRA, 2485) og GM Michele Godena (ITA, 2447).
Konur 65+ (29 keppendur)
Guðlaug mætti rússneskum andstæðingi með 2155 sem er með því hæsta í flokknum. Guðlaug hafði svart í drekanum og virtist aldrei í neinni hættu, fékk snemma þægilegt tafl í miðtaflinu þrátt fyrir að vera tímabundið peði undir.
Sigurlaug gerði líka jafntefli gegn Diana Skibbe (1954), þýskri skákkonu.
Í þriðju umferð hefur Guðlaug hvítt gegn WIM Thipsay frá Indlandi og Sekhposjan (1943)
- WFM Guðlaug Þorsteinsdóttir – 13. stigahæst með 1994 skákstig
- Sigurlaug Regina Friðþjófsdóttir – 26. stigahæst með 1713 skákstig.
Í þessum flokki er goðsögnin GM Nona Gaprindashvili (GEO, 2168) stigahæst. Nona er auðvitað fyrrverandi heimsmeistari kvenna og var meðal keppenda á fyrsta Reykjavíkurskákmótinu 1964! Þess má geta að meðal keppenda í 50+ er sjálf GM Pia Cramling!
Mótið stendur til 14. nóvember og er teflt er í fjórum flokkum. Tæplega 400 keppendur taka þátt og þar af fjórir Íslendingar. Tveir í 50+ flokknum og tvær í 65+ flokki kvenna.
Tenglasafn
- Heimasíða mótsins
- Chess-Results – Íslendingar
- Opinn 50+ – chess-results
- Konur 65+ – chess-results
- Beinar útsendingar á Lichess
















