Aðeins tveir skákmenn hafa enn fullt hús Sel Hótel Mývatn/Mývatn Öl skákmótinu enn þriðja umferð var tefld nú síðdegis, seinni umferð dagsins. Stórmeistarinn Vignir Vatnar Stefánsson hefur enn fullt hús eftir að hann lagði Josef Omarsson að velli og Dagur Raganrsson hefur einnig fullt hús eftir lipran siguleik gegn Arnari Milutin Heiðarssyni.

Vignir hafði hvítt gegn Josef og virtist fá yfirburðatafl gegn Philidor vörn svarts. Í miðtaflinu missir Vignir tökin og staðan orðin jöfn. Þurfti Vignir eiginlega að vinna skákina „aftur“ og í þetta skiptið hafði hann árásina á óvinakónginn og knúði uppgjöf!

Örn Leó gerði nokkuð öruggt jafntefli við Ivan Shitco en Davíð á 3. borði hefði átt að leggja Simon, hafði tögl og haldir nánast alla skákina en Simon var seigur í vörninni!

Dagur kom sér á toppinn með því að leggja stórmeistarabanann Arnar Milutin. Lokaleikurinn flottur!

24…Rd2!! ansi skemmtilegur leikur! Tvöfalt skálínumát ef riddarinn er tekinn!

Skákir 3. umferðar á lichess:

Úrslit 3. umferðar:

Nokkuð um jafntefli á efstu borðunum. Fínn dagur hjá Lenku!

Staðan:

Dagur og Vignir þeir einu með fullt hús.

Pörun 4. umferðar:

Dagur og Vignir mætast í toppuppgjörinu. Gauti fær sinn annan enska stórmeistara á mótinu…ekki hægt að fá fleiri! Björn og Örn Leó, Íslandmeistararnir úr TV mætast innbyrðis.

Keppendalisti:

 

Upplýsingar um mótið:

Fimm stórmeistarar taka þátt í mótinu og fjórir alþjóðlegir meistarar. Keppendur koma frá fimm þjóðlöndum og eru af öllum styrkleikum. Sjá mótið á chess-results

Allar skákir mótsins verða í beinni á lichess.com

Nánari upplýsingar um mótið.
6 umferða opið alþjóðlegt skákmót, teflt á fjórum dögum, í einum opnum flokki og reiknað til kappskákstiga hjá FIDE.

Tímamörk
90 mínútur fyrir alla skákina með 30 sek viðbótartíma fyrir hvern leik frá og með fyrsta leik. Sjálfkrafa tap dæmist á keppanda sem mætir á skákstað meira en 30 mínútum eftir upphaf umferðar.

Dagskrá.
1 Umferð 19.11.2026 kl 19:00
2 Umferð 20.11.2026 kl 10:00
3 Umferð 20.11.2026 kl 16:00
4 Umferð 21.11.2026 kl 10:00
5 Umferð 21.11.2026 kl 16:00
6 Umferð 22.11.2026 kl 10:00

Oddastig (tiebreaks): 1. Fleiri tefldar skákir 2. Buchholz (-1) 3. Buchholz 4. Innbyrðis úrslit 5. Sonneborn-Berger 6. Oftar svart.

Yfirsetu reglur. (bye rules) Skákmönnum verður heimilt að taka tvisvar sinnum hálfs vinnings yfirsetu (bye) í umferðum 1-5, að því tilskildu að þeir gefi nægan fyrirvara. Með nægum fyrirvara telst hafa verið gefinn áður en öllum skákum er lokið í umferðinni á undan fyrirhugaðri yfirsetu umferð.

Verðlaun
1 sæti 150.000 kr
2 sæti 100.000 kr
3 sæti 50.000 kr

Verðlaunum verðu skipt verði keppendur jafnir að vinningum

Topp 65+ 25.000 kr (+/- 170 €)
Topp U-18 ára 25.000 kr
Topp U-1800 elo 25.000 kr
Topp stiglaus 25.000 kr

Heildarverðlaun: 400.000 kr ( +/- 2790 €)
Ef sérstakur U-2000 elo flokkur verður eru verðlaun þar fyrir 1. sætið 50.000 kr

Þátttökugjöld 

kr. 10.000
kr. 7.000 fyrir 18 ára og yngri og stiglausa.

Mótið á chess results

- Auglýsing - Arion Banki-styrktaraðili Minningarmóts Friðriks Ólafssonar