Að lokinni fjórðu umferð minningarmóts Friðriks Ólafssonar deila moldóvíski stórmeistarinn Ivan Schitco og makedónski alþjóðlegi meistarinn Emil Risteski forystunni með 3,5 vinninga.

Schitco lagði norska stórmeistarann Aksel Bu Kvaløy að velli á efsta borði og Risteski vann Íslandsmeistarann Hilmi Frey Heimissyni. Kvaløy, sem var einn með fullt hús eftir þriðju umferð, er nú með 3 vinninga ásamt landa sínum, alþjóðlega meistaranum, Tor Fredrik Kaasen, stórmeistaranum Vigni Vatnari Stefánssyni og FIDE-meistaranum Halldóri Grétari Einarssyni.

Vignir, sem hafði tapað fyrir Kvaløy í þriðju umferð, vann færeyska FIDE-meistarann Luitjen Akselsson Apol og er kominn aftur í slaginn um efstu sætin. Halldór vann sigur á Bárði Erni Birkissyni í afar köflóttri skák.
Fimmta umferð hefst klukkan 16 í dag. Þangað til geta áhugasamir fylgst með heimsmeistaraeinvíginu en þriðja skákin hófst kl. 14.
Pörun og nánari úrslit má sjá á Chess-Results og heimasíðu mótsins.


















