Fimmta umferð Skákþings Akureyrar fór fram í dag og var hart barist á öllum borðum.
Fyrstir til að ljúka sinni skák voru þeir Benedikt og Andri. Benedikt rataði snemma í vandræði og gafst upp eftir 16 leiki. Var hann þá talsverðu liði undir.
0-1
Í skák Rúnars og Arnars varðist yngsti keppandi mótsins vel með svörtu mönnum lengi framan af. Nálægt 20 leik tókst Rúnari að vinna peð og nýtti alla sína reynslu til að sigla endataflinu heim
1-0
Mikil spenna var í skákinni Símon – Smári og mátti lengi vel vart á milli sjá hvor stóð betur. Símon hafði mun betri tíma og þegar tímahrak var framundan hrundi svarta staðan eftir ónákvæmni Smára.
1-0
Óvæntustu úrslit dagsins urðu í æsispennandi skák Sigurðar og Stefáns. Sigurður blés til sóknar en Stefán varðist af hörku. Svo fór að Sigurður lét peð af hendi en átti framsækið frípeð og biskupapar. Augnabliks ónákvæmni varð til þess að hann lék af sér frípeðinu og þar með skákinni. Þar fékk Stefán sinn fyrsta vinning, vonum seinna. Sigurður hefur verið óheppinn það sem af er og er enn án vinnings.
0-1
Staðan eftir fimm umferðir er sem hér segir.
1.-2. Símon og Rúnar 4,5 vinningar
3. Andri 4
4. Smári 3
5. Benedikt 2
6.-7. Stefán og Arnar 1
8. Sigurður 0
Næsta umferð fer fram á fimmtudag. Þá leiða saman hesta sína:
Andri – Smári
Stefán – Símon
Arnar – Sigurður
Benedikt – Rúnar.
Sjá einnig Chess-results















