Hannes að tafli í Lissabon. Mynd: Facebook-síða mótsins.

Stórmeistarinn Hannes Hlífar Stefánsson (2514) situr þessa dagana að tafli í alþjóðlegu móti í Graz í Austurríki. Í fyrstu umferð vann hann hollenska FIDE-meistarann Eugene Rebers (2188) og í þeirri annarri gerði hann jafntefli við pólska FIDE-meistarnn Michal Rudolf (2331).

Mótinu er framhaldið í dag með 3. umferð. Þá teflir Hannes við Kínverjann Lin Yi (2345).

Alls taka 122 skákmenn frá 27 löndum þátt í mótinu. Þar á meðal eru 11 stórmeistarar.

 

- Auglýsing -